bryddarinn


AMMÓ

elsku besta litla dýrið á reynimelnum er 20 ára í dag. mér finnst að hann eigi að vera 4ja ára með uppbrettar ermar að syngja slagara Stjórnarinnar (eitt lag enn, syngjum öll um sumarlag o.s.frv.)


En hann er að klára versló þessi elska og hefur staðið sig mjög vel þessi 4 ár þar. verið á fullu í félagslífinu, verið kjötmaður og náð sér í lekkera kærustu. Hún heitir Heiða, hún var að greiða mér í gær herra Jón.

Íslandsdvölin er í alla staði afslappandi og hef ég sofið út í eitt að undanförnu. Fór reyndar á tónleika í boði afa míns í gær og áttum við dásamlega stund í íslensku óperunni þar sem barítónsöngvarinn Willard White þandi lungu. Dásamlegur söngvari og karakter sem reif allan salinn með sér á flug. Síðan bauð afi Binni upp á bjór og nachos á Sólon þar sem við áttum dásamlega stund saman.

Remúlaði og rok



Home