bryddarinn




hæ, ég er á íslandi. búnir að vera dásamlegir 10 dagar hér og 3 eftir.. er farin að svitna svolítið við tilhugsunina að kveðja fólkið. Það er svo mikil ást í loftinu að ský og rigning hafa ekkert til síns máls. Tótlan mín er komin með undursamlega óléttukúlu í einni fallegustu íbúð sem ég hef séð, Bylgja og Bjarni stórvinir giftu sig (sjá myndir á single síðunni) og ég fæ að skála í te og kaffi með veddanum á meðan ýtt er á enter og hennar fögru tónum hleypt á netið á milli mannfræðitíma hjá stúlkunni.


Núna geta allir keypt sér lagið "A Beautiful Life" á http://www.tonlist.is/. Hún védís mín er ekki bara dásamleg vinkona heldur frábær lagahöfundur sem reyndar syngur eins og engill. Já hún er vinkona mín og ég er heavy stolt af henni! í pjötlupartýi hjá önnu heru vinkonu um daginn minntist annan sjálf á það hvað lífið væri fallegt og enn fallegra að eiga vinkonu sem að syngur um það (þú sagðir það víst anna). Hægt er að fara inn á síðuna http://www.vedismusic.com/ og hlusta á brot úr lögunum á plötunni til að fá strax meiri tilfinningu fyrir heildarverkinu, en þau koma einnig út eftir ca. 2 vikur (engar áhyggjur, hér munu koma tilkynningar). Ég ætla að drífa mig til spánar og fara að prómóta kvikdindið enda þarf liðið að fara að hlusta a e-ð annað en Shakiru.


Ég var í kvöld í osta-vín-stelpuboði hjá afa og Rúnu konunni hans. Þau eru svo miklar dúllur. það eina leiðinlega er að í móðurfamelíunni fer fólk gjarnan í fýlu og þá kemur dúddi ekki af því að siggi mætir en siggi mætir svo ekki því að pálína fyrrverandi hans arnars bauð ólafi ekki upp á pylsu. ég held að þetta lið þurfi að kaupa sér A Beautiful Life og baða sig upp úr því.


Hamingjan er ekki áfangastaður heldur ferðalag.




Home