| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
styttist í pullu og kók hér. fran öfundar mig en ég hefi lofað pullupartýi í madrid. spurning hvort að kristinn r mæti ekki með bjór og ólívur. ég er voða dugleg að gleyma tilgangi heimferðar: próf. þarf að spíta í lófa hér. við hjúin erum með annan fótinn í foreldrahúsum þessa dagana til að passa hús og hund. hér er internet sem býður upp á margt m.a. diskinn hans gnarls barkley. lögin crasy og smiley faces eru ein og sér ástæða fyrir því að vakna á morgnanna. takk matta! já og annað, lagið Heartbeats bæði í upprunalegri útgáfu sænska dúettsins the knife og endurgerðin hans Jose González eru miklir gleðigjafar í lífi mínu. takk védís! eftir 25 stiga hita og sól í apríl þá hefur hið sígilda maí-rigningatímabil hafið innreið sína mér til mikillar ánægju. ég kann ekki að læra í hita og sól. það er ómannlegt. vita sameinuðuþjóðirnar af þessu? jæja ég og nala ætlum að fara út að pissa. bless bless. ![]() 07:42 |
rúsínurassgatið hann bróðir minn benni er 18 ára í dag. sólin á spáni fagnar bróður og fréttir herma að hann láti sjá sig hér í sumar. við benni erum miklir vinir og án hans væri líf mitt þurrt. ég get ekki talað við hann á msn því þá grenja ég af söknuði. læt hér smá myndasyrpu fylgja í tilefni þessa undursamlega dags. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() bryddarinn elskar þig! 10:38 |
|