bryddarinn


uffe eleman jensen

ef það líður of langt á milli blogga þá er erfitt. dæmi: tótla er flutt til ástralíu. guðrún gengur með börn! ég fór í 2ja vikna dekur um mið- og suður spán og svíf ég nú á rauðvínsskýi hlustandi á nýjustu afurð emiliönu torrini sem er íðilfagurt og einlægt stykki. á leið til spánar var tekinn hressingur í londres með góðum konum og góðum manni.
ég veit ekki hvað ég gerði til að verðskulda bestu vini í heimi, yndisleg systkini, ágætis foreldra og síðast en ekki síst besta ástmanninn. allt annað fer með aukahlutverk.

talandi um hlutverk þá vissi ég ekki að það er víst ekkert leyndarmál hver fær óskarinn því hann er keyptur. Gyðingar vs. Mafían, Dreamworks vs. Miramax. ýkt óspennandi.


Home