bryddarinn


sígarettur, kúlur og vindlar dómarinn svindlar! (bamm bamm, bamm bamm bamm)

everybody´s doin their thingaling í dag nema súri súrason sem vaknaði lítill og veikur, ákvað að fara í tíma en snéri við sökum vanlíðan og festist þar með uppí sófa. eftir sms sendingar til föður míns varðandi efasemdir mínar um tilgang lífsins (= hálsogeyrnarbólga og hiti), kom hann eins og bímaður frá vinnu til að hygge sig med sin datter med en kop kaffe. lekkert í þessum hödda, er ekki frá því að ég hafi skánað. nauðsynlegt mjög því á morgun skal skundað á airwaves !!! vei vei vei og munum við katan mín ástin mín rokka reffilega þessa helgina sem og aðrar. ég missti heiðdísina mína austur fyrir fjall og sunnan glettingi í dag þar sem hún mun rækta kindina í sér fram yfir helgi. einn vinur fer... en annar kemur! því veddinn minn er að kyssa tær lands oss ísa í þessum töluðu, jú mikið rétt hún mun ljá bangalagang rödd sína.
skál í te-inu! bangalang



la vie

lífið er fallegt fyrir utan dagnýju jónsdóttur. ég hef ekki mikið spáð í píu þessa en síðan mætir hún hress og er að státa sig af samkomulagi LÍN og landsbankans á síðu sinni, í fréttablaðinu og guð má vita hvar, um að ekki þurfi ábyrgðamann fyrir námslánum (heldur gengst bankinn við ábyrgðinni). ,,Þetta var eitt af kosningaloforðum okkar framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar..." baaaaaaaaaaaa og hvað með það!! var tekið viðtal við þig þegar þetta kom í gegn?? nei! af því þú sast á rassgatinu. það voru stúdentar sem fengu þetta í gegn www.student.is takk fyrir. enginn bjévítans alþingis rolla. það er mjög stutt síðan dagný var í HÍ og mér finnst hún alveg mega sýna stúdentum meiri stuðning á þingi í stað þess að eigna sér og sínum bííííp flokki það sem okkur sjálfum tekst að afreka.
gleymd´ekki þínum hinsta bróóóóður.


Home