bryddarinn


miðvikudagurinn 22.sept... svo veddi haldi áfram í keisti

nú er svo komið að draumar mínir eiga það til að vera svo raunverulegir að ég á það til að rugla saman draumi og vöku (vei vaka!). vaknaði um daginn í öngum mínum því ég bjóst við manni í rúmi... en jeremías og jósafat, bara martröð, vil ekki hafa mann þar nema hann sé ógeð klár á hljóðfæri og barngóður. núeee svo getur hiti færst í leika og í nótt var ég í svíþjóð og menn voru að stela tölvu minni og veski. kemur því sennilega ekkert við að HÍ nem fengu sent mail í gær um þjóf á háskólasvæðinu eða því að ég er fædd í svíþjóð. nei þetta táknar mikla ógæfu svía á næsta HM í frjálsum. Í nótt kunni ása valdís heldur ekki að keyra. Er enn að ráða þann draum, kannski vegna þess að aní brilli lánaði mér bílinn sinn í dag núe eða e-ð augljósara eins og léleg frammistaða ásu í sangríudrykkju bryddarans síðasta laugardag.

af því raunverulega þá er voða gaman og mikið að gera. 4 flug eftir og hlakka til að einbeita mér að vöku og skólanum. um daginn bilaði myndbandið í vélinni og ég fékk að ,,demóa" þ.e. að sýna björgunarvestin, súrefnisgrímurnar og allt heila klabbið í miðri vél. hef ekki gert þetta síðan í apríl en var engu að síður fast í haus mér og gekk eins og í kókosbollu.

tónlist hefur einnig tekið sinn tíma. fór á frábæra tónleika með diddú og jónasi ingimundar í boði háskólans um helgina og haldið þið að diddú hafi ekki bara skellt sér meðal annars á töfraflautuna. rugl. frú inga ásta hafstein bauð mér um daginn á kvöldsöng í fríkirkjunni þar sem sigríður ósk kristjánsdóttir hin unga og efnilega sópransöngkona færði hjarta mitt í hæstu hæðir. munið það nafn. í kvöld verður skundað með veddara á tónleika með margréti eir og á morgun verður tjekkað á damien kallinum.

veitið því athygli að næsta útgönguleið gæti verið fyrir aftan ykkur.


Home