bryddarinn


have a good one

margt hefur drifið á daga bryddarans. fyrir nokkru var lagt í viking með hlynsa bróður til boston. crewið var með eindæmum hressandi. Keila og amerískar módelpásur voru einna mest hressandi. blessaður hlynur verður krýndur kóngur þolinmæðinnar hvað þar sem ég var ötul að láta manninn máta og segja honum hvað væri lekkert... varla leggjandi á mann sem að eigin sögn er í íslenska flughernum... en þetta var allt gert í þágu hlyns. lens í dúkkó.

vökuferð farin um síðustu helgi þar sem mikil helun átti sér stað í árnesi. ,,ég hef aldrei" leikurinn var spilaður klukkustundum saman við mikla helun. þríhyrningsást, framhjáhald og annar sori kom upp á yfirborð þessa annars snilldar fólks.

31.ágúst átti amma aðaheiður (Alla) afmæli og fór öll föðurfjölskyldan að borða á A. Hansen. Meðan við vorum að syngja og tralla þá fékk maður exi í fés.

við bensi brós ætlum síðan að taka baltimore og annapolis (og jafnvel washington d.c.) í góðan lax þessa helgina. yndislegt að hafa góðan mann upp á armi.

pabbi er að hælast í hveragerði og fattar ekki að tilgangurinn með leirböðunum er að venja gamla fólkið við jarðveginn.


Home