bryddarinn


ég heiti vedder og ég vann

í gærkvella skundaði bryddari ásamt raquel og gudds í bæ kenndan við reykjanes. stúlkur voru prúðbúnar til að fagna söng veddarans í ljósalagskeppninni sem haldin er í tilefni af ljósanótt 2004. eftir snilldar mat og harða keppni voru úrslit kynnt og viti menn..... ÞESSI VANN!!!! þar sem ég er ekki hlutdræg er ég ánægð að langbesta lagið hafi unnið. lagið, textinn og söngurinn increíble! þau voru allnokkur lög sem komu til greina fyrir utan feilspor líkt og techno lagið sem verður sent beint á 5000 fermetra benidormbúllu og blessaðan manninn sem söng um glæpi og stríð. spurning um að halda sig við efnið...

eftir úrslit héldum við stúlkur í heiðargil veddarans og co þar sem kaffi og súkkulaði var á boðstólum. brosið er enn uhu-að kringum fés mitt.
TIL HAMINGJU TRÚTSINN MINN! ég er að kafna úr monti.



ég heiti guðrún og ég er ljón

reykjavík 218 ára, ísland - ítalía... allt fellur þetta í skuggann af þeirri staðreynd að elsku guðrún MÍN á afmæli í dag!!! Ljóngyðjan sú hefur sankað að sér 24 árum og ber þau afburða vel. Ég bauð tjellu í weiss og mat á enriqos í lunch og hlakka til að fá að njóta hennar meira í kveld. Fyrir utan þokka og fegurð hennar guðrúnar þá ber hún einnig þá kosti að vera með eindæmum skemmtileg og pottþétt vinkona. Ég elska hana óendanlega mikið og veit að okkur var ætlað frá 6 ára aldri og fram til hins síðasta að njóta þess sem lífið bryddar uppá.

til hammó með ammó mín bestasta!



sólarsamba

Hver eru bestu kaupin í fjernsynum í dag? var að spá í e-ð segjum ódýrt og frekar ódýrt. það gamla dó á stórskemmtilegan en þó í senn á leynilegan máta.
saga 1: kötturinn við hliðina hljóp það niður.
saga 2: kærastinn minn gekk berserksgang í svefni, dreymandi að tribal tattoo-ið sem ég gaf honum í afmælisgjöf hafi lekið niðrá rass.
saga 3: sjónvarp er tímaþjófur og ég ætla nota tímann í bakstur og grindarbotnsæfingar.

þið megið bara ráða....


Home