bryddarinn


faaaaallegt

já það er lífið. með brunna bringu reyni ég að brenna á baki og skakklappast við að reikna í leiðinni. pabbi bauð mér í nudd í gær og þar var ég barin eins og harðfiskur, toguð, teygð og misþyrmt á alla kanta. er aum með eindæmum en ekkert sem að sólin og rauðvínsglas geta ekki lagað (bíða e.t.v. aðeins með það).

heran okkar fer af landi brott í næstu viku og mér og öðrum single meðlimum til ama, en svona meðan aðlögun á sér stað þá kemur beritin og veddarinn í visit! védís er að taka þátt í keppni um ljósanæturlag 2004 og má heyra það og kjósa á www.tonlist.is. þessa einu nótt er afar fallegt lag sem stúlkan samdi sjálf ásamt texta. gott ef ég grét ekki við life flutning í 101 rvk eina fallega nóttina.
gleðilegt sumar!


Home