bryddarinn


las amigas
brauðristin er komin í hús með hjálp góðs frænda. straujárnsleysi er ekki farið að hrjá mig strax en þar sem ég mun bjóða uppá egg og djús í háloftunum er nokkuð ljóst að krumpuð verður fluffan ekki.

gott fólk hefur kvartað yfir fréttaleysi á þessari annars hressandi síðu og er aldrei að vita að ég komi með einstaka frásagnir. það sem mér þykir einna fréttnæmast eru vinkonur mínar. nú er svo komið að tótlan mín er að fara!!! aldís er löngu flúin af landi brott, sem og guðrún, védís hyggur ekki á að láta sjá sig mikið hér, heiður tryllir spánverjann (vei blogg), Herdís dúxandi í lonogdon og allt. ég er reyndar að fara til amsterdam næsta laugardag í reynsluflug en mun ekki stíga fæti úr vél. allir að skella sér til ams og sýna mér móralskan!

iiii má ekki gleyma að kata og heiðdís halla komust líka í fluffuna! þrefalt húrra fyrir þeim: húrra húrra húrraaaaaaaaa


Home