bryddarinn


-wtf-
vúhú auka síminn hans pabba er kominn í hús svo að þið getið byrjað að hringja. en hins vegar kom jólasveinninn í heimsókn í nótt og stal gleraugunum mínum. þ.a.l. verð ég bara að vera með linsur. veit ekki afhverju guð er að refsa mér.



-hmmmm-
massvív helgi að baki. rúllaði upp rekstrarhagfræðiprófi, borðaði á ítalíu, fór á trabant og tjútt. ég gerði þau reginmistök að vera ekki praktísk heldur pæja og fara með ógesssla flottu hvítu töskuna mína sem lokast hálf illa og uppskar engan gsm eftir laugardagskvöldið. þannig að núna er það bara boddy@simnet.is fyrir matarboð og önnur fríðindi. en hins vega ef þú ert með símann minn, nokia 8210 með blágrænu fronti, viltu þá vera næs og koma honum til skila. þið hin megið standa með mér og hafa augun opin fyrir bastarðinum. annars þá vil ég benda þeim á sem ekki hafa farið á trabant tónleika að skjóta sig í litlu tánna.


Home