bryddarinn


-tríó Cantabile-
ég fór með gummus í ráðhúsið í hádeginu í dag að horfa á þessar stúlkur spila á þverflautu, píanó og raddbönd. rosalega gaman að hlusta á lifandi klassíska tónlist og sérstaklega þegar hún er borin fram af svona klárum listamönnum.
birna nokkur halldóra hefur boðið mér til teitis á morgun og ég hlakka mjög til :)



-MR gals-
snilldar hittingur hjá tótlu í gær. hún bauð upp á margt og ber helst að nefna PEZ! snilld. sokkaband var afhent verðandi brúði ásdísi og virðist hún vel undirbúin fyrir bryllupið. við freyjurnar fegnar að heyra að danska amman sé komin til landsins, því vitiði hvað er að henni??? það er gaman að henni!!! takk ásdís :)
í dag er bryddarinn hins vegar fastur í illa-andandi verslun og hlakkar til aldísar í keflavík í kvöld :)



-slaka með pittarann-
trútsi var skírð lísa :) snilldarinnar matur í veislunni og nóg um gott fólk og brosandi lísu. hún virtist afar ánægð með nafnið blessunin. að þessari veislu lokinni var haldið til margrétar bessadóttur í all svaðalegasta stelpupartý sem sögur fara af. vodki í melónu, hlaupstaup, kanilsnúðar og allt. restin var róleg með gumms gumms og endalaust notaleg...


Home