bryddarinn


-17.júlí!!-
ammlidagurinn mikli!!! í dag fagnar Birna systir mín 9 ára ammli. síðan ber að nefna þóru móðursystur mína og soffíu hilmars. það eru fleiri en ég bara man ekki. í kvöld kíki ég á sys og hún fær massa gjöf!
ég, guðrún, aldís og svenni borðuðum snilldarmat í gær frá jia jia í kef. sendi-sveinn var síðan sendur út eftir shake og kúlum. mikið rætt og brallað á þeim bæ :) hlakka til að fá helgi og frí!



-baby born-
nú hafa hinn mágur minn og svilkona fjölgað mannkyninu. kiddi jóh og erla hafa eignast litla sæta krullínu :) ég bý yfir mikilli krullureynslu og mun þessi skáfrænka mín eiga í hús mín að vernda með kollinn sinn. við hjá bryddaranum erum himinlifandi og hlökkum til að hitta trútsann!
eftir vinnu munum við guðrún blasta bílinn og skransa á reykjanesið. aldís nokkur kristín mun bjóða upp á eitthvað kræsilegt...



-birna ósk-
í gær var ég í mat í selinu hjá pabba mínum og stjúpmóður. eftir það bauð ég lil sys á kaffi parís þar sem rætt var um heima og geima og síðan í bíó á Lizzie Maguire. mega stelpumynd og ég er ekki frá því að birna hafi gleymt að brosa í einu atriðinu. kannski náði hún ekki að lesa textann... hún er óttaleg snúlla og við verðum að gera miklu meira saman. ég ætla að gleðja hana mjög næsta fimmtudag því þá verður hún 9 ára!!



-quiero ir al extranjero-
viðey var gott sprell myndir frá denna. bærinn var alveg súr og fórum frekar snemma heim. lau var vinna og hulk og tollurinn settur inn í skáp. sund, tiltekt, matarboð og annað sunnudagslegt í gær. við gummi settum inn myndir frá barcelona og ég er farin að safna fyrir næstu spánarferð :)


Home