bryddarinn


-sumarkort-
í gær var gleði á vegum símans. bryddarinn fékk sér bjór í tilefni dagsins og hlustaði á fyrirlestra um hinar ýmsu nýjungar sem brátt munu líta dagsins ljós. mér líst misvel á það sem verður í boði en ég verð víst að hafa jákvæðar skoðanir gagnvart öllu saman.
helgin lítur ágætlega út... viðeyjarsprell á morgun og þynnkuvinna á lau. en skjótt skipast veður í lofti.



-dabbi bekk-
the guy is handsome en slaka með píkuna. taglið, demantarnir og búningurinn... nokkuð ljóst að ég kom ekki nálægt þessari stílíseringu. svo þegar gaurinn byrjar að tala! það vella kleinuhringir upp úr honum. ég er real manneskja og að sjálfsögðu ánægð með liðsstyrkinn, en mér finnst einum of mikið hallelúja í kringum hann og hans hæfileikalausu konu sem bítur í kinnarnar þegar myndum er smellt af henni. mér finnst carlos og zidane vera mun betri fótboltamenn en kannski bíta konurnar þeirra ekki nógu fast. iii ein ógessla súr :)



-vedder-
hún á ammliiiiiiiiiiiiiiii vei vei vei vei vei vei! allir að segja HÚRRA! vedisa@hotmail.com fyrir heillaóskir. veit ekki hvort ég fæ hennar notið í dag... mun reyna að troða mér, en ég mæti í gleðskap næsta föstudag með góðu fólki í bæ kenndum við reykjanes. við hjá bryddaranum þökkum fagurgalanum fyrir að vera einn mesti trútsi í heimi og ávallt til í allt. þú ert krulli!



-heima-
talandi um brotlendingu. mætt með brosið, nafnspaldið og góðan daginn í vinnuna. hnerrandi eins og hundur og með sýkingu í auganu. man einmitt þegar tanja hundurinn hennar heiðar fékk sýkingu... hún átti bágt. get ekki einu sinni fengið mér nammi í sárabætur af því að hjúkkan segir að ég verði að borða hollt. svo er herra ATLI ógeðslegur óvinur minn og það þarf að borga HÍ og allt. ætli ljósið sé ekki helgin og tollurinn...


Home