| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
á morgun verða útskriftir! ég ætla til erlu svilkonu minnar og guðrúnar vinkonu. einnig er mér boðið til Herdísar en ég get því miður ekki farið í allt. hins vegar ef hún er heppin þá fær hún fríkeypis dreitil í bænum. fallegar konur verða fegurri við það að hjóla. 18:22 |
í dag fögnum við Íslendingar femínisma með því að klæðast bleiku. mér finnst karlmenn almennt leiðinlegir að mæta ekki með e-ð bleikt á sér. því jú karlmenn geta verið femínistar. ég veit að gummi minn er það. vill hann eiga réttindalausa láglaunaða konu? nei nei. í dag er gummi í ljósbláum polo bol en það er ekki alveg nóg. magni í spilabúðinni segist vera í bleikum nærum og glottir, en ég hef lítinn áhuga á haldbærum sönnunargögnum og er hress í bleiku. 15:59 |
keisari keistsins er á landinu í fríi frá upptökum. hann mun e.t.v. blása í stokka og bjóða til gleðskaps! vedder, átt von á símtali... 17:32 |
mig dreymdi að bræður mínir væru óvitar og hefðu slitið uppáhalds töskuna mína sem ég keypti í barcelona í fyrra. og það sem verra var að mamma leit á mig með svona-er-lífið-svip og skammaði þá ekki neitt. ég túlka þetta sem svo að ég eigi að kaupa 4 töskur í barca bara handa mér. 17:21 |
hin mesta snilld að baki. á föstudaginn fór ég með aldísi og guðrúnu á planet rvk og skelltum okkur í pottinn með axlarnuddi, andlitsmaska og hvítvíni. body butter flæddi um búningsklefann og síðan var haldið á reynimel móður minnar þar sem hrein snilld tók við. gudda mætti með kjúlla á teini og aldís með salat og ég annað meðlæti. nóg var um fljótandi veitingar og trúbbann... síðan vegamót - karffibar - hverfisbar. laugardagurinn var vinna og síðan brunað með gumma upp í munaðarnes. sambandið sem gumms er í var með hitting ásamt mökum. dóri hafði reddað tveimur bústöðum og þetta varð þvílík snilld! við gellurnar stofnuðum samfélagið og fögnuðum með tilheyrandi drykkjuleikjum. dóri og ívar sáu um - brilliant lambalæri og á eftir voru bananar löðrandi í súkkulaði og heit epla pie. fórum síðan út í einakrónu, köttur og mús og fleira skemmtilegt. það var ekkert mál að taka saman í gær þar sem heilsan var góð og birna hans jóa matreyddi pylsur og kaffi fyrir mig. helginni var síðan slúttað með jóh kvöldi þar sem snúlla sjálf mætti. brilliant! 12:35 |
|