| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
ég er svo súr. gæti sofið í heila viku ef enginn myndi bögga mig... vaknaði klukkan 3 í nótt og byrjaði að bölva sjálfri mér fyrir að hafa sofið yfir mig. held að þetta sé bara stress þar sem að það er massa partý í kvöld með s2000 og svo vestmannaeyjar á morgun, vinna, kaupa... endalaust storyboard hér. í nótt dreymdi mig líka mikið, það eina sem ég man er að valur hringdi í mig. veit ekki hvort að maðurinn eigi e-ð vantalað við mig... vantar kannski kvenlegar ráðleggingar þar sem að maðurinn er eigi einhleypur. gummi minn hættu nú að vera veikur því gleðin bíður! 11:25 |
í gær massaðist ég alveg brjál í hreyfingu. skellti mér á orbitrek og við hliðina á mér var súrasta fíla sem ég hef á ævinni minni fundið. spurning um að þvo leikfimisfötin ALDREI! til að byrja með reyndi ég að prumpa til að yfirgnæfa fíluna en þar sem að karmellulyktin mín var ekki nógu yfirgnæfnandi, hélt ég fyrir nefið þangað til að súra konan gafst upp. spurning um að skella sér í þvottavélina... 11:21 |
í gær fagnaði afi binni 78 ára afmæli við mikinn fögnuð viðstaddra. kallinn var eitur eins og vanalega og sagði sögur af henry mills sem var einn fyrst pornógrapher veraldar og fékk ekki sögur sínar birtar í upphafi síðustu aldar. henry kallaði allar konur kuntur í sínum bókum og afa fannst afar eftirminnileg setningin ,,my danish cunt had an arse as big as the universe". þessi frásögn spratt frá því að við eigum frændfólk í noregi og ein frænkan er víst með það herfilegan rass að það mætti nota hann sem innskotsborð í veislu... og þegar afi var að ýta henni upp á litla skít hestinn sinn og sá þjáninguna í augum hestsins var honum hugsað til henrys... aldís er komin heim og er stefnan tekin á eyjar um næstu helgi með henni. guðrún mætir síðan 9. júní. hef mjög svo góða tilfinningu fyrir sumrinu. 13:34 |
undur og stórmerki! litli brósi er farinn að rúnta! hlynsi vals er kominn með bílpróf. hann stefnir á bílakaup og mun þar með skjóta systur sinni ref fyrir rassgat. merkilegt er að hlynur gerði sömu einu villuna og ég.. gleymdi einu stefnuljósi. hvort það var þegar hann var að bakka fylgdi ekki sögunni. fór á valur - þróttur með pabba í gær og hefðum svo sem mátt sleppa því þar sem að valsararnir áttu góðar 10 mínútur í upphafi seinni hálfleiks og ekki mikið meira en það. eftir það var s2000 hittingur á kaffi victor þar sem var hlegið og planað massa partý næsta föstudag. dórimann heimtar justin og ég er viss um að þetta verður rossssalegt. 11:39 |
helgin var rosssalega nett. afslappelsli með jóh bræðrum, konum og barni á fös. eftir stúdentsveislu kristínar nokkurrar. vinna með rónum á laugardag og djamm um kvöldið. hinn mest fínasti hittingur hjá þorgrími þar sem boðið var upp á kattamat og partýtrix með ketti. sveittbar var sveittur og áfengið áfengt. dansaði vel og lengi með heiði vigfúss sem er eðal djammari. í gær var síðan sund með múttu allan daginn í sólinni í neslaug. verslað og borðað á austurvelli með gumma og hlyn bró. helgi slúttað á mel víðis með bruce almighty, gumma, vedder og sæma. mjög gott. 17:59 |
|