bryddarinn


tax
þurfti að vakna klukktíma fyrr sökum námskeiðs á vegum global refund í morgun og þar mætti einn svefn súr HLYNUR. ógesssla gaman að sitja með 17 ára brósa og fá flottar veitingar. hlynsi var ekki feimni maðurinn og sagði öllum að hann væri fyndni hressi gaurinn í vinnunni sinni :) já og hann er líka farinn að kaupa föt á stóru sys! í gær fór ég til hans í útilíf smáralind og hann gaf mér roooosalega flottan rauðan casall bol fyrir leikfimina.
í kvöld eru 3 bús! kiddi frændi er að útskrifast úr FÁ og svo eru valur hressi og toggi spíra að útskrifast úr FB. ég verð í fáranlega flottum bol sem selma nýbakaða mamma lánaði mér. HRESSANDI HÉR



pabbi er óttalegt krútt. bauð mér á vegamót áðan.. rosalega reffilegur kallinn i nýjum jakka, bindi, skyrtu og allt! og útskýrði hvernig fataskápurinn nýttist miklu meira núna. hvernig 1001 ljósar buxur sem hann á passi við nýja jakkann og að bindið dragi allar skyrtur út úr skápnum... ég er glöð og kát því nú skil ég minn sjúkleika. þetta er genatískt og ég ætla að kaupa mér e-ð fallegt dag!!! jihúúúúú


jibbí kóla
eruð þið ekki spennt að fá DV í dag? hvernig verður birgitta.. forsíða eða baksíða? með pizzu í annarri og hamborgara í hinni. mér er alveg sama þó að hún sé heimsfræg í riga... þarf þjóðin að vita hve oft hún kúkar á dag eða...
ég er endlaust þreytt og voða mikið að gera... en blasta bara gerry and the peacemakers og áhyggjurnar fljúga til lettlands.



neo boy
matrix blessaður stóð ekki undir væntingum en fínerís afþreying.... punktur
mér finnst beckham sætur með flétturnar sínar. hann er að reyna að aðlagast afrísku menningarlífi í tilefni af heimsókn sinni þangað... voða lekkert hjá honum. en hvað er málið með að reka strák heim úr skólanum af því að hann var með eins klippingu?!?!? bretar að bryðja sýru...



glensi
vedder mætti surprise til lands ísa og hún og sæmi buðu í dinner í gær. við gummi vorum afar dösuð eftir góðan mat og spjall við brillla. skellti mér í sund í veðurblíðunni í morgun og þar er sko glens hjá gamla fólkinu. gömul harmonikkulög blöstuð á meðan sundkennari stendur yfir þeim og vinstri upp hægri snú. þegar ég verð gammel ætla ég að vera hress í sundleikfimi í tangini.



tjill
enginn próflokafagnaður á þessum kanti. kvolití með gummanum alla helgina... tv, sund, moll, pizza, eddie murphy, sund, beikerí.... very nice. enda verður næsta helgi massív. nýtt tímabil í dag þannig að straujun hefst á ný. annars er helst í fréttum að mbl segir spelt ekkert svo merkilegt!! en ég hlusta ekki á þetta búdl.


Home