bryddarinn


oma
er að tapa sér. hún var að koma úr hagkaup með annað eins af blandi í poka. afhverju kann fólk að spyrja. jú það er 50% afsláttur á nammibarnum! alltaf að græða...



in die potten gehen
ég synti eins og selur í hádeginu í dag. skellti mér svo í pottinn og þar var maður í flokki 120+ kg, hann færði sig við hliðina á mér og spurði ,,kemurðu oft hingað". mig langaði að öskra úr hlátri... maðurinn minnti mig ekki á að kjósa, heldur að taka þátt í lottóinu og síðan fékk ég að heyra nýjasta slúðrið í víkingalottóinu... mér tókst að forða mér upp úr en þá stóðu 30 þýskir ferðamenn alklæddir og horfðu á mig spranga á mínum löngu glansandi grönnu leggjum yfir í búningsklefana. pirrandi gaur.


djöfull er amma samt töff. hún fór í hagkaup og keypti bland í poka fyrir 800 kjjjall.


x-D
ég er búin að finna ideal kosningapartý... Í LONDON. aldís snilli er með brjálaðan mat og drykki og hleypir fólki inn eftir stjórnmálaskoðunum :) nei annars þá held ég að það henti bara svo vel að sandra og maggi londresbúar séu vel kjósandi. verst að missa af þessu... rétt hjá aldísi er snilldar netkaffi með rosa góða sammara og kaffi og hressa starfsmenn. um daginn þegar þær systur fóru þangað spurði einn hvað hún hefði gert við strákinn sem væri alltaf með þeim og krullhærðu stelpuna. ÞAÐ ER ÉG! mér finnst það sætt þar sem að sven býr þar en ég er bara gestur.
ung stúlka að nafni valborg og er systir herdísar býður upp á fínerís pælingar...



amma
flest ungt fólk á ömmu eða tvær og líkar vel. en að búa með þeim eru mistök. ekki gera það!!! nooooooo farðu frekar á leigumarkaðinn. ég sakna þess þegar ég gargaði heima á mel ,,er að fara út" og svo var kallað og kallað þegar það var hringt í mig í heimasímann... eeehhh held að hún sé ekki heima.... ég leik núna þann leik að loka bara hurðinni áður en spurningarnar koma frá þeirri gömlu. það þykir svo roosalegt að fara út. amma fór í klippingu í dag sem þótt heldur betur verkefni fyrir heilan dag (minnir mig á strák, þið megið geta, fyrsti stafurinn byrjar á gummi) og þegar hún kom heim var mín sko fúl. hún þurfti að labba heim úr lágmúla og inní voga í þessu fínerís veðri. eins og hún hafi svoo mikið að gera við að horfa á bíórásina. var svona með fílusvip ,,ohhh hvað það er kalt úti" ég sagði bara nei nei mér finnst þetta fínt veður.. og þá alveg með guð-það-sem-ég-þarf-að-ganga-í-gegnum svipnum ,,ÉG LABBAÐI ALLA LEIÐ!"


jungdom studenten lykklige dag
próf eftir viku... slugsi slugsason að tapa sér hér. bara partý og glens um helgina held ég :) annars er how to loose a guy in ten days alveg málið. ég er ekkert æst í amerískt kellingavæl but I had a feeling about this one. kate hudson er algjört æði, rosa sæt og fyndin. svo er matti mattason líka voða lekker.



baby joh
fórum í gær að skoða mest sætustu og díos mío hvað hún er ennþá sætari í eigin persónu. það hringdi svo yfirþyrmandi í eggjastokkunum mínum að hallgrímskirkja má taka sér sumarfrí. síðan dreymdi mig lítið barn og allt. en ég er alveg róleg, fæ að trútsa þessa og væntanlegt barn erlu og kidda (hinn bróðir gumma sem er í landsliðinu í skvassi). barnagleði hér.




vei vei vei gummi er kominn (og fílakarmellurnar:))! kíkið á myndirnar af mest sætustu í heimi...



góðan og blesssaðan
ekkert varð af djammi í gær. ég keyrði mömmu og vinkonu hennar ásdísi uppí reiðhöll þar sem einhver sýning fór fram og meira að segja áhættuatriði! mamma var að reyna að útskýra þetta fyrir mér áðan en ég hló aðallega. voða tónlist og hestarnir krossast og ég veit ekki hvað og hvað. vorum að tala um hvað það skiptir miklu máli að vinna að markmiðum sínum strax. mamma sagði mér frá manni sem var í skóla með henni sem var algjört bjútí og genious í hausnum. en í dag er hann ljótur pimp. frekar blautur gæji sem hreyfir ekki á sér rassgatið, lætur konur dansa á súlum og ég held að hann sé giftur einni svoleiðis. skrýtið hvernig fólk getur leyft sér þetta... kannski er þetta bara manngæska. friður ,,ástþór" 2000 tekur líka að sér svona grey...
en talandi um bjútí þá er lindýrið mætt á svæðið með nýja síðu vei vei vei.


Home