bryddarinn


mmmm
frá og með kl.19 ákvað ég að gera engan lærdóm heldur skella mér úr með góðri konu sem gerði pasta og fínerí á víðimel við falleg demo. vona að þau muni hljóma í eyrum allra innan skamms...vei vei vei... nauðsynlegt að gera e-ð annað en læra og þá e-ð annað en að plápa á helv..sjónvarp og hanga í þessari annars ágætu tölvu. best að steikja í sér hausinn öll kvöld. en er komin heim og klukkan að verða miðnætti og kannski ég fari út að hjóla eða e-ð.


ég þoli ekki...

...fólk sem að var í fríi í dag frá vinnu og lærdómi.
...fólk sem var í fríi í dag frá vinnu og lærdómi og túr og fór ekki í sund.
...fólk sem fór ekki út að hjóla í dag.
...fólk sem er að fara að dreipa á ljúfmeti.
...fólk sem á pening fyrir mat.
...fólk sem er í sturtu og að græja sig fyrir partý.

and that leaves????

vedderinn minn er samt æði og ætlar að ná í mig og gera handa mér mat! ljósið í myrkrinu hér...


sko inga mín, þú klikkar á gelluna - preview - chloe. þá klikkarðu á þessar snilldar setningu. ég tek þessar óljósu leiðbeiningar alfarið á mig :) þetta er ekki klám, þetta er mannorðseyðilegging eða e-ð.


má ég má ég má ég?!?!?!
sko mér var bent á voða lekkert myndband af stúlku hérna. náði ekki að linka beint á þetta en klikkið á stúlkuna "of course I masturbate"....þetta vekur endalausa kátínu á þessum bæ... ætli gummi vilji gera svona með mér???



almúginn
ótrúleg innri barátta á þessum kanti. þegar ég renni í gegnum myndirnar á vegamótum finnst mér alltaf jafn lúðó hvað stelpurnar eru ófrumlegar. flestar eru alveg eins klæddar og margar alveg jafn ljósabrúnar, með sömu strípurnar og allar jafn mjóar. á myndunum frá hverfisbarnum er miklu meira úrval af fólki og tísku. jú ok sveittibar (hvebbi) er stór og mikið af fólki lítur þangað inn en vegamót er minni staður með sína fastakúnna. flest mín topp tíu djömm hér á landi eiga vegamót sameiginlegt. oftast góð tónlist þar og mega grúv í gangi, en hverfis aftur á móti oft á velsæmistónlistarmörkunum. eftir vegamótsmyndirnar get ég ekki hætt að hugsa um próflokin þegar ég ætla í 2 ljósatíma, lifa á ávöxtum, fara í hvíta þrönga píugallajakkann, kaupa mér rauða eyrnalokka í skarthúsinu og slurka grænum breezer í kokið á mér á vegamótum. að fráskildum krullunum held ég að ég sé alveg eins og lúðó stelpurnar á myndunum.



girls! word of advice: ekki skoða bæklinga frá victoria´s secret í læripásum. farið frekar út að hjóla.


gleðjist gumar
býð gleðilegt sumar með einni af uppáhaldsmyndum þess síðasta. hún er af glæsilegu borðhaldi mínu og sigrúnar í feríunni í málaga. djammið hefst um kl.14 á götunum og þarna erum við í pásu að snæða paellu um miðnætti áður en haldið var áfram... mesta snilldin.




que aproveche
það var einu sinni maður sem þurfti að fara í sumarpróf og hann dó. hafið þetta atvik bak við eyrað í lestrinum lömbin mín. það sem ég væri ekki til í að skella mér í þrítugsafmæli með gumma í kvöld hjá strák sem ég þekki ekki en það stóð +frú og það verður örugglega nóg glens og grín. en neeiii ég má ekki :(


Home