bryddarinn


aldis
sami heiðgarðurinn hér. páskar í lagi ekkert flipp þó eða dansiball, bara bækur og sund. þjónaði í fermingarveislu sem gaf vel í hönd og horfði á myndina 28 days later eftir danny boyle sem gerði trainspotting, shallow grave, the beach og meira og meira og meira. þetta er viðbjóður en samt rosalega góð mynd sem bryddarinn mælir með.
annars er merkilegast að aldís best í heimi er 23 ára í dag og mun ég skella mér í hennar gleðskap... það er fullt af afmæli, inga ásta hafstein góðvinkona fjölskyldunnar er fimmtug og fagnar því í london, hjördís systir hans pabba er ammli barn og ef ég man rétt þá líka vigdís hans eika búa.
feliz pascua



fíla
helvítis helvíti önnur hljóðhimnan sprakk í laugardalnum í morgun. ég var að labba fram hjá ÍSÍ á engjavegi og þá fann ég hitatilfinningu og svo BAMM!!! nei nei var að synda og þá fann ég svona skemmtilega tilfinningu eins og vatnið hefði brotist inn í hamar steðji og ístað. og þegar ég ætlaði að eiga kvolití tíma með kremunum mínum mætir spiiikfeitt útlenskt hlass við hliðiná mér og hún var með hár eins og marge simpson (nema ekki blátt) og lyktaði eins og kæst skata á góðum degi. hmmm síðan ætlaði ég að versla í bónus og var á leiðinni í 3.bónusbúðina þegar ég áttaði mig á því að þær væru sennilega allar lokaðar fram að hádegi. og ég er ekki enn byrjuð að læra.... :(



keine party
róleg helgi að baki. gummi kom með til kef að heimsækja aldísi og svenna sem voru að passa í gilinu. grillaðir hamborgarar og fondu eftirréttur með endemum skemmtilegt. svo á laugardag var vinna og grilla meira með gumma. í gær eldaði mamma rosa gott. held sem sagt að ég hafi verið að borða alla helgina. spurning um pítu í kvöld mmmm... djamm næsta laugardag en annars massalestur hér fram að 3ja mánaða helun sem hefst ca.17.maí.


Home