bryddarinn


BAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
munurinn á staðalvillu, úrtaksvillu, úrtakadreifingu og svo videre er afar takmarkaður! held að hausinn á mér sé að springa!



hp
hádegi fór í malt og þátt á discovery um hjákonur, eigikonur og fræg sjálfsmorð þeirra. ég fræddist um lenín, ensk skáld, john lennon og ég veit ekki hvað. sniðugt hjá lenín að hafa eiginkonuna og hjákonuna í íbúð hlið við hlið. eflaust hefur þeim ekkert liðið vel, en er einhver að spá í því? reyndar gafst konan hans upp á þessu, lét senda hina í burtu, en þvílíkur draumur fyrir kallinn ef þetta hefði gengið... hewlett packard í london trufluðu mig með símtali og vildu staðfesta það að ég hefði farið með tölvuna mína í viðgerð fyrr á þessu ári og hvort að ég væri starfsmaður hjá hp, fengi þessa tölvu frá vinnuveitanda eða væri einstaklingur. kannski eru þeir leiðir yfir óþægindunum sem ég hlaut á meðan yfirferð stóð og ætla að bjóða mér til london á árshátíðina þeirra!



helen daniels er dáin, það fór ekki framhjá gummus.



frumkvæði er dyggð en jafnframt dygð.


zzzzzz
það er svo gott að sofa allan daginn þegar ég á að vera að læra fyrir aðferðafræðipróf. enda ekki skrítið þar sem að ég reif mig á fætur klukkan 7 til að vera mætt hress í skólann á slaginu 8. ótrúlega magnað að eftir 2 mánuði verða prófin búin og ekkert nema gleði. fór einmitt á laugaveginn í dag og hlakka til að hanga þar næsta sumar... reyndar hugsa ég að í lok sumarsins verði símabúðin eina verslunin á laugaveginum. nei kannski bónus haldi sér... alla vega var tilgangur bæjarferðar hjá mér og svönu body shop sem er að hætta (í 101) og 25% afsláttur! ég gerði rosaleg kaup, púður og bodyscrub á rúman 1000 kall! vá hvað það er hægt að snappa þarna í kiwi-coconut-strawberry hinu og þessu. stelpur ég mæli með þessu, nýtt kortatímabil :)


Home