bryddarinn


catz
á að fá alla þá góðu strauma sem eru á lausu. blessunin fékk nýtt krossband fyrr í vikunni og er föst heima hjá sér alveg lens á lyfjunum. sniffy verður skilað undir kvöld og munnlegt próf á morgun. Held síðan að ég efni til staupkeppni annað kvöld. En þar sem að Kata er að vonum ánægð með nýtt og betra krossband býður hún heiminum upp á sniffy




lettland
alveg er ég viss um að þetta umtal um lagstuld á right here waiting hafi borist til meginlandsins að eyrum áhangenda eurovision og við séum þ.a.l. sjálfkrafa búin að skipa okkur neðarlega á lista. ég græt það að vísu ekkert en bara svona svo þið hin gerið ykkur ekki súkkulaðibrúnar vonir. Allar nánari upplýsingar um stöðu okkar í þessari keppni gefur Benedikt Valsson.


nói
albinói var mjög svo góður í boði gumma. var auðvitað hrædd um vonbrigði eftir allt hæpið en sveiattan nei. breaking news!! á morgun kemur aldís kristín til lands sem er rosalega magnað því að hún var síðast á landinu í ágúst! sniffy verður að vera snöggur að læra því að stúlkan skal hafa greiðan aðgang að mér.



sniff
skýrslugerð og gleðin ein sem einkenna þessa viku. hugsa að ég segi bara sögur af sniffy the virtual rat og gamansögur úr hreyfingu. í dag fór maður úr lið þegar hann ætlaði að skella sér í magaæfingar, en hann kippti sjálfur í liðinn blessaður. núeeh sniffy er hress og kátur ýtandi á slá til að fá mat, hann er svo gráðugur verður hvorki saddur né þreyttur. já og talandi um græðgi, hún Inga Steinunn! ekkert smá gráðug gella mar!! eða ekki! meira ég gráðug heima hjá henni í gær í kræsingum með kötu, þórey og herdísi. hitti einmitt þóreyju í hreyfingu með sama samviskusvipinn og ég, en nú er þetta allt farið út í andrúmsloftið...


Home