| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
á mánudaginn hitti ég ásgeir orra, trausta, kidda og hadda í hreyfingu! ég var alveg lens. hitti geira og traust líka í kvöld. komið ef þið þorið, við erum öll orðin heeel mössuð! ásgeir og harpa (hin eina sanna björt barkardóttir) eru að leigja saman í sigluvoginum (ennþá meira lens) og mun verða haft samband við síðu bryddarans þegar efnt verður til samkvæmis. já inga steinunn þú kemur með! 00:12 |
![]() hákon á mynd hér hress og kátur á 3ja ára afmælinu sínu með gjöfina frá mér! í madrid sá ég um að passa snáðann og sakna hans mjög mikið. hákon er einstaklega laginn heima fyrir, sérstaklega er kemur að kökubakstri og grasslætti. þegar ég fæ aðgengi að bíl (tíminn líður trúðu mér) þá ætla ég að vera miklu duglegri að fara til hans. 00:03 |
þar sem að háskólinn er sniðugur og lætur mig mæta í tíma í hinu fallega húsi á hlíðarenda, þurfti ég að taka strætó niður að landsspítalanum og labba þaðan, varð gegnsósa af veðrinu á leiðinni og þurfti að sitja hálf sofandi, rennandi blaut og horfa á mynd um ýmisskonar hegðunarmynstur í atferlisfræði og heyrði ekkert þar sem að surroundið var ekki að elda grátt með þessari 40 ára gömlu mynd. annars er það að frétta að fallegi bróðir minn hann hlynur er kominn með æfingaleyfi og hann keyrði með mér gær. eðal ökumaður og ég hugsa gott til glóðar að geta hringt í hann, enda eru bílakaup í myndinni! hressandi mjög. 16:29 |
|