bryddarinn


sniffy the friendly rat
einu sinni voru til þeir dagar sem ég bölvaði því fólki í hljóði sem að skrifaði bara um skólann. þegar ég fer á netið þá leiðist mér lærdómur og þá les ég ekki bloggin um dæmatíma, skýrslur og próf. en ég hugsa að ég éti hattinn því ég hef ekkert annað að tjá mig um. myndi tjá mig um nýja bílinn en HANN ER EKKI TIL. núeh ef þér leiðist lesandi góður þá er kjallari odda að virka, með tölvu í annarri og sniffy í hinni. ég er búin að kenna honum að ýta á stöng til að fá mat og hætta því og ýta bara þegar hátíðnihljóð ómar. ég á kannski að vera hress þar sem virtual rats vaxa sko ekki á hverju strái, en mér tókst ekki að láta hann snúa sér í hring á afturfótunum, né standa á höndum þannig að mér þykir ekki mikið til þessa koma. en tilbreyting jú.



múm
..ínálfarnir fannst mér aldrei skemmtilegir en hljómsveitin er hins vegar mjög hlustendavæn (samt ekki spiluð á fm 957 jiiiii). ég mæli með I´m 9 Today til að dreifa huganum frá veðri og öðrum óþægindum en Green Grass of Tunnel er þó uppáhalds.



schmidt
about schmidt með jack nicholson er hin fínasta mynd. greyið gaurinn er svo súr alla myndina og sérstaklega þegar hann þarf að sofa í vatnsrúmi. hvað er það?! best að eyðileggja á sér bakið því hvenær ætti maður annars að draga fram hitt sem fylgdi með í kassanum. þegar ég var í gaggó áttu foreldrar katrínar magneu vatnsrúm og við vorum duglegar í hoppukeppnum eftir skóla. kannski ástæðan fyrir því að þau eru löngu búin að fá sér nýtt. sorry anna og nonni.



skimmed milk
heim í heiðardalinn kom ég í fyrrakvöld í hendur á sæta mínum. no more buses! enda erum við að fara að kaupa okkur bíl! vei vei vei. þetta var yndisleg ferð. góður matur, mannlíf, föt og yndislegir vinir. védísin var veik mest allan tímann en var með endemum dugleg að rífa sig með í gleðina. á laugardaginn kom hún meira að segja með á barina á upper street og þótti spes með tebolla :) hún og aldís fá þúsund og milljón kossa fyrir allt! aldís heim að sækja er óeðlilega gaman. stúlkan sú gerir einn besta mat í heimi og er snillingur í verslunarleiðöngrum sem og í prúttinu á portobello. svenni ,,frændi" fær líka koss fyrir að slá mig, þykjast vera þjófur og tala upp úr svefni. sven kemur til lands næsta sunnudag, védís í eina viku í lok febrúar og aldís um páskana.

fyrsta einkunninn á þessari önn er væntanleg innan fárra daga eftir að ég skellti mér í giskumákrossanapróf í dag í lífeðlislegri sálfræði og náði 5 réttum af 6 sem gefa mér 8,3! að komast frá íslandi og temja sér örlítið kæruleysi gerir greinilega gott.


Home