bryddarinn


ble me
ástæða bloggleysis er ekki nýi fjölskyldumeðlimurinn, heldur biluð tölva í húsi. Leysið mun halda áfram þar sem að sprellið hefst eftir nokkra klukkutíma og ég hef ákveðið að sleppa því að ráða afleysingarbloggara.
áfram gummi vei vei, vei, vei vei!. já og guðrún! takk fyrir meilið, svaraði miklu, þú ert snillingur. bless á meðan.



office
nú er það bókhlöðumaraþon til að friða heilasellurnar þar sem að ræktun hugans mun felast í kaffi, slúðri, mörkuðum, tónlist og ég ved inte hvad frá og með miðvikudegi. þá á hádegi mun ég lenda í massaplani aldísar og védísar í bretlandi hinu stóra. á morgun er matarboð á mel þar sem lasagna og flugseðill verða á boðstólum.



binni
ég er ekki dáin heldur ordenadorinn og ég fæ hana vonandi á morgun.
en binni er frændi minn og útskrifaðist í gær úr tækniskólanum. af gefnu tilefni var dreitill í efstaleitinu og veitti heimilsfólkið vel ofaní mannskapinn. rautt, hvítt, bjór, líkjörar og eitt það besta hlaðborð sem ég hef lent í en til að vera penar sendi fríða frænka hann adda sinn til að fylla á diskana. eftir það var kaffibar með fífí og þar hitti ég árna hrafn, darra og fleira sniðugt fólk. en svo fann ég gummann og gísli marteinn réð sér ekki af kæti. tók hann með heim af því að það er endalaust Lekkert í honum.
þynnkulæri


Home