bryddarinn


uno más!
ég skellti mér í pallafjör í hreyfingu áðan sem var genial! ég veit ekki afhverju ég hef verið svo á móti karleróbikkennurum því að ég er búin að fara í 2 tíma hjá sitthvorum gaurnum og hef aldrei svitnað jafn mikið. ég átti samt erfitt með hlátur á tímabili þar sem hann jóhannes er mikið fyrir spænskuna. hann taldi niður: ocho, siete, seis, cinco.... UNO MÁÁÁS!!!!! og svo kunni hann alls konar bransaeróbikorð á spænsku. Frasar eins og IZQIERDA, DERECHA!, ARRIBA, ABAJO og ME COMPRENDES??? komu einnig við sögu. Svo spilaði hann spænska tónlist inn á milli. Ég mæli eindregið með jóhannesi í fitubrennslu.


londres
svenni er komin með vinnu hjá kaupþing og mun því flytjast frá dísunum mínum í byrjun í febrúar! ég fer til þeirra miðvikudag í næstu viku og hlakka mjög til að sjá ný húsakynni og fræðast nánar um plön fólksins...
annars mæli ég eindregið með apple & cinnamon flavoured tea undir sæng :)



það má vigta cheerios
helgin var hin besta í alla staði! lau-kvöld hófst á snilld með pizzu og bjór á eldsmiðjunni. síðan færðist gleðin til hjördísar afmælisbarns og vinkonu gumms og bauð hún upp á bollu og fínerí. mikil helun átti sér stað við fögnuð allra en þó ber sérstaklega að nefna val sem að væri ennþá fullur ef ekki væri fyrir kokteilana sem ég færði í boði gvendabrunna. einstaklega gott djamm með miklu úrvali þó upp úr standi að sjálfsögðu staupin... cointreu í boði gumma og tequila í boði ebba. svo var ég þess heiðurs aðnjótandi að vera viðstödd jóh kvöld sem slúttaði helginni glæsilega. Dóri, einhvern tímann færðu að vera leynigestur.


Home