bryddarinn


hollt
nóatún auglýsir hollari lífshætti á heilsíðu mbl í dag. þeir felast einmitt í úrbeinuðum grísahnakka, kremkexi, viðbiti, rúllutertum og bacon bollum svo e-ð sé nefnt.
hressandi mjög.



maggý
...vinkona hans gumma er vel af guði gerð og var að lána mér fullt af sálfræðidóti. ég labbaði út frá henni með fullt fangið af visku og er ekkert eftir nema að hjóla í þetta. ætla að vera endalaust dugleg og fara svo í kvöld að spreða forlátu gjafakorti sem faðir minn gaf mér um daginn í tilefni af fæðingu jesú. gott í honum kallinum. hann er í usa og ég í bílnum hans sem að ég elska næstum jafn mikið og pabba. bíll eða íbúð 2003 er mitt mottó. íbúð takk.



hlómsveitarbróðir
benni, kári og ég man ekki (kobbi?) unnu söngvakeppni samfés í frostaskjóli í kvöld og stefna á frægð á frama í laugardalshöll eftir ca. 2 vikur. þeir unnu þetta með frumsömdu lagi sem NB ég hef ekki fengið að heyra en krefst þess hér með... elsku bens til hamingju, ég er mjög spennt!

ekki fara í tilraunasálfræði. maðurinn vill ekki að nemendur hringi eða sendi tölvupóst.



sil & hei
thailandið er hresst í dag. heiða hætt að æla og stelpurnar komnar á 5 stjörnu manninn þar sem þær geta flatmagað í sundlaug í 30 stiga hitanum, fá hreina sloppa upp á herbergi og smokka á náttborðin. really sweet.



escuela
fyrirlestur að hlíðarenda að baki. stundartaflan verður æ fegurri þar sem að það var skipt í 2 hópa í dag og tímarnir á mánudögum fækka um helming. þessi greining og mótun hegðunar er samt alveg á fylleríi og ég býst við endalausum lestri að nýju. fór líka í hreyfingu í dag og hitti góðar konur. m.a. þóreyju sif og við rusluðum pöllunum. tóti við áttum staðinn!
núna ætla ég hins vegar að skella mér til védísar þar sem við munum snæða ásamt rakel og andreu. elskuleg er að fara til london á miðvikudaginn sem er svolítið erfitt þegar hún er nýkomin og þarf að kveðja manninn (sæmund), famelíuna og vinina. þannig að núna ætla ég að trútsa mikið.



thai
silja sif og heiða eru allt í einu staddar á thailandi hjá pabba silju! var að fá mail frá henni þar sem hún býðst til að versla e-ð fyrir mig. þær eru búnar að fara á strippstað, æla í sturtuna og eru á leiðinni á fimm stjörnu hótel. megaflipp.


Home