| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
ásta berit malmquist er snillingur! sökum rauðvínsdraugs á ásvallagötu þurfti ég að skipta um búning í gær og fékk flottan bol hjá ástu. takk ásta, bolurinn gerði gott kaffi. hösslaði í honum! 21:10 |
...var í mr og býr núna í parís. ef ég hugsa frakkland hugsa ég strax thelma. hún fór til aix fljótlega eftir stúdent og býr núna í parís með ævari kærastanum sínum þar sem hún stúderar lögfræði. síðast þegar ég sá hana var ég á leið til london og hún spásseraði um leifstöð í löggubúning því að danskur eða sænskur ráðherra var á svæðinu og hún var í lifegard pakkanum. rosa flott, verð að redda mér svona galla. einu sinni var ég í sólbaði með thelmu á algarve á portúgal og við ákváðum að skella okkur til sevilla daginn eftir með nokkrum stelpum. ég verslaði svooooo mikið fyrir lítinn pening og thelma blessunin var hjálpsamari en allt. við vorum þarna í 2,5 daga og náðum að búsa, versla, fara í tívolí og skoða kaþedralið. ólöf, björk, solla, guðrún eva, eva kaaber og fleiri góðar stelpur voru með í sevilla för og einhverjar drógu 2 mk-inga með sér af djamminu á portúgal og þeir vöknuðu við fagnaðarlætin þegar við fórum yfir landamærin og vorum mættar helþunnar til spánar. fengum aukarúm í herbergin á hótelinu en þeir sváfu síðan uppí hjá stelpunum. fyrst kláruðu þeir mínibarinn og létu björk borga. annar þeirra var fífl sem hélt endalaust framhjá kærustunni sinni og reyndi við ljósastaura en hinn (held arnar) var fínn. svo mætti kærastan til portúgal og ég sá hann með súrasvipinn á djamminu á meðan hún ríghélt í manninn. þegar við komum frá sevilla var sólmyrkvi og allir með gleraugu. 14:18 |
það var svo gaman í gær að ég ætla að deyja. nei nei. það var svo mikið sprell á ásó með s2000 að ég fór ekki í bæ fyrr en eftir 2! gott að eiga góða vini haaaaa. var 4 sek að kjafta mig fram fyrir alla á hverfis og labbaði í fangið á gummanum, védísinni og sæmanum, lo todo para una noche divertida! vedder var helaður og sverrir náði lækninum!!!! til hamingju sverrir! rakel sif sannaði að hún er ekki bara útlitið heldur svo miklu miklu meira. andreus weissappel var hress mjög sem og kontrömaðurinn. með góðu fólki er alltaf gaman en ef djamm verður í kvöld heimta ég vegamót og prik! 12:59 |
ég verð að greina frá áhyggjum mínum þess eðlis að brad pitt sé ekki farinn að fjölga sér. maðurinn verður fertugur á þessu ári! hann á auðvitað fullt eftir, en algjör synd að það séu ekki lítil pitt börn í heiminum. ég var lengi að jafna mig eftir að þau gwyneth hættu saman en er farin að taka jennifer í sátt. núna má hún vera ólétt takk. mætti líka taka hitler á þetta og setja manninn í búr og nota til undaneldis. láta hann gefa vist magn af sæði á mánuði sem notað yrði í glasafrjóvganir fyrir einstæðar konur. 15:36 |
kílómeter í sundi og krullaknús á víðimel gerðu þennan drottins dag. S2000 hefur loksins fengið sína eigin síðu! fylgist vel með því goji er í stöðugu glensi. amma mín er einnig í stöðugu glensi. sérstaklega á jólunum... ![]() 00:47 |
ég er búin að kaupa bækur og ætla nú að undirbúa fyrsta fyrirlesturinn í greiningu og mótun hegðunar á HLÍÐARENDA! vei vei vei! þessi stundartafla er að gera heiminn. 8-12, 9-13 er vinsælt sem og frí á föstudögum takk fyrir mig. ef ég er skipulagðimaðurinn má vel vinna sér inn skilding með þessu. vörin og vitleysingurinn hennar eru komin til lands og ég ætlast til þess árnadóttir að þú vaknir og komir í bæinn!! hjúskaparráð er farið út um þúfur. 12:29 |
magnað! ég fór á google og var að leita að einhverju um mat (mér finnst gaman að vita hvað ég er að setja ofaní mig) og sló inn "fitty,brauð" því mér finnst það gott og eina færslan sem fannst var á þessari mögnuðu síðu bryddarans!!! mér finnst að myllan ætti að styrkja mig. mæli með kjúklingaáleggi og kotasælu á fittyið. í morgun vaknaði ég til að taka þátt í rannsókn erfða á þunglyndi. fór í viðtal og blóðprufu í nóatúni og fór létt með það. tók ekkert drama og lét ekki líða yfir mig. núna ætla ég að reyna að plata mömmu og pabba í þetta til að sjá hverjum þunglyndi mitt er að kenna. nei nei, grínimaðurinn hér, ég er hress! bara gaman að láta gott af sér leiða. mikið af þessum spurningum er ég búin að svara 200 sinnum í vetur v/ B.A verkefna 3.árs nema. aðallega er verið að spyrja út í kvíða, svefn, drykkju, dóp og dordingul. Katrín Erla Gunnarsdóttir (a.k.a. kata kömm) fær alla mína krafta fyrir próf morgundagsins. ég veit að þú getur þetta léttilega, þarft að vita það sjálf ástin mín :) svo hittumst við í taumlausri gleði heima hjá dóru pönk annað kvöld! 16:47 |
endalaust góður dagur í gær. til tótlu voru mættar guðrún, inga steina, þórey, herdís og ég. bekkjarmynd 10.M og L/R var dregin fram og spáð í fólkið, börn, bryllup og drykkjuvandamál. katrín magnea komst því miður ekki og legg ég til að hún haldi næsta boð því þá kemst hún :) eftir þetta buðu jón og lilja upp á fondu stemmara í álftamýri 15 til að kveðja útlendingana daða og guðrúnu. bjarni jóns var að sjálfsögðu á staðnum og kári bróðir daða. magga bessa og tryggvi mættu síðan hress og kát í hagamels ís. til að kóróna daginn voru teknir fínerís tónleikar á grandrokk með gumma, þar sem hljómsveitin Ég lék fyrir dansi. ég elska frí. 14:18 |
|