| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
núna nýt ég þess að vera í FRÍI!! lesa og drekka kaffi. á eftir verður brugðið til búnings því Tótlu tetrið mitt er að halda kaffiboð fyrir álftógals og ég hlakka mikinn. núeh síðan mun ég halda áfram að njóta samveru með Guðrúnu hinni gestristnu því að hún er búin að bjóða mér í mat. Gudda er því miður að fara á morgun aftur til köben en miðað við stutt stopp og hennar mörgu aðdáendur er ég að fá stóra sneið af kökunni :) ég elska þennan dag. 13:11 |
![]() rósa, aldís og sandra á trafalgar. rósa býr í usa þannig að ég hitti hana því miður ekki í bráð... þegar ég var í mr og stundaði hin víðfrægu tjarnarhlaup var heiður blessunin dugleg að hlaupa í mergð fugla af því að mér fannst það ekki sniðugt. en sandra toppar allt. sjáið svipinn á henni, þarna er hún hrædd við eina dúfu sem er 3 metrum frá henni. sandra hefur og mun aldrei labba inn á sjálft trafalgar enda eru þetta fljúgandi rottur eins og sveinn heiðar orðar það. 18:11 |
feliz ano nuevo! ég er ekkert að vinna, en gerði stórvirki í dag, hóf feril minn í Hreyfingu því að ég vann mánaðarkort þar. finn ekki kvittunina um það en stúlkan trúði mér bara. samt var ég nývöknuð og ljót. þetta frí er gott, tók í nál og tvinna áðan! það gerist 2x á ári max og þvoði og straujaði. veit ekki hvað er í gangi kannski baka ég vöfflur á eftir... nú eða ekki. skólinn er eftir 10 daga og stefni á að vera vel undirbúin af því að öðrum 10 dögum síðar verð ég í london ekki með bækur takk fyrir. ég fékk jólkort fyrir nokkrum dögum frá carmen pérez sanz, hún er vel hress og kenndi mér, aldísi og védísi spænsku í nokkrar vikur árið 2000 í salamanca. ég hef aldrei fengið neitt sent frá henni áður og var því una sorprisa á melnum. ég væri svo til í að skella mér í oggu tíma til hennar og læra meira. salamanca er svo lítill og sætur bær. hugsa að ég gæti ekki búið þarna lengi, færi þá frekar til madridar, barcelona, sevilla.... en að heimsækja svona bæi í smá tíma er það skemmtilegasta í lífinu. ég elska spán, tungumálið, matinn og afslappelsið þar. spánn einu sinni á ári er mottó sem hófst 99 og deyr aldrei. 17:54 |
á áramótunum verð ég lítil í mér við að kveðja árið og hrædd við það nýja. en ekki núna!!! ég ætla að rusla þessu ári og ganga ákveðin á móti því. vei vei vei 2003!!! hann bensó er hreykinn af systur sinni :) 17:10 |
13:46 |
|