bryddarinn


jólamaðurinn
kaffi á kanti eftir s2000 tjútt í gær, edrú þó! en það var endalaust gaman. lúdó var lens og laxi tvistaði. skipað var í embætti og hlaut ég netstjóra single 2000 sem Heiður lagði mikla áherslu á, þar sem að hún mun stjórna krúinu frá mílanó næstu 5 mánuðina. við tvistuðum mikinn og aní lék naut í tilefni dagsins. aní átti reyndar mest af gríninu. hún var búin að búa til kórónu sem var typpi upp í loftið og átti frasann ,,þau eru öll eins þegar inn er komið!" ásamt fleiri góðum óbyrtingarhæfum.
á fimmtudaginn voru glösin teiguð með Guðrúnu Glæsilegu á Reynimel 80. nauðsynlegt samtal þar sem margt gott leit dagsins dimmu. löbbuðum á hennar heittelskaða Daða og fótboltakrú í bænum og tókum geimið á vegamótum. þetta snillings par er brill. ekkert vesen, bara kaldhæðni, húmor og glens. síðan lét ég guddu hlaupa af sér beinin á sólon þar sem ég hitti Gumma og Togga, en samt aðallega Gumma. heim seint og sátt við gott kvöld.



jól
ég tók próf aldrei þessu vant hjá ingu, e-ð svona who you sleep with celeb likely og ég fékk: Karl Urban: you like them tall, dark, sexy and fun. Who the fuck! veit ekkert hver þetta er og vil ekkert með hann hafa. þ.a.l. verður hann ekki peistaður hér maðurinn.
ég er stuffed eftir mat hjá pabba og co og síðan eftirrétt hér í karfavogi með hluta af móðurfólkinu mínu. ætla að láta staðarnumið í háminu og stefni á rækt á morgun. hlakka til hér. opið í þrekúsi frostaskjóli frá 10-14, fjölmennum á hlaupabrettin! síðan verður sennilega lestur og annað jólahangs á meðan mamma mín fer út úr bæ og síðan ætlum við saman í bæinn og fá okkur gott að borða og drekka. það verður skálað í boðinu. við guðrún jónsdóttir vorum að velta því fyrir okkur að flengja margeir og diskóið á morgun nema gott partý dúkki upp.... síðan er jólaglögg s2000 á föstudaginn svo að ef þið blygðist auðveldlega myndi ég vera heima. maske að taka lau líka. fín verslunarmannahelgi... Málið er að njóta lífsins og slappa af (með pásum á brettum) hér í musterinu. þetta er lovely.



gleðileg jól og takk fyrir gleðina. ég sendi ykkur engin jólakort þetta árið og knúsa ykkur því fastar á djamminu :)



zapatos
þráinn er búinn að lappa uppá jólaskónna eftir dans, djús og valhopp síðast liðinn fös. mæli með þránni, eðal skóari og fínn gaur. versla ekki við neinn annan. Benedikt ákvað í tilefni dagsins að skella í bað og gleyma því og núna flæðir vatn á parketinu á Reynimel 80. Kallað var á Kára og Kobba vini hans og standa þeir sveittir að þurrka íbúðina. ég sagði aldrei lognmolla. leiðinlegi maðurinn er kaldur úti.



djús
var ekki komin heim í gær fyrr en kl.23 eftir vinnu en skellti strokes á fóninn og rauðvíni í glas. kvöldið var hverfisbarinn með guddu gellu og kanínuskinninu. svo var rugl og vitleysa með gumma og dóra sem var mjög gaman, alla vega það sem ég man. ég get ekki allt, er svo búin á því eftir lestur og vinnu. Hugsa bara LONDON!!! jihú! Aldís and Verdice ég sakna ykkar, elska ykkur og ætla að klípa í eyrnasnepplana! jú védís líka þína.


það var einu sinni stelpa sem að tók leigubíl heim. hún flaug á hausinn á leiðinni úr bílnum, fékk gat á nýju sokkabuxurnar á bæði hnén og hún dó ekki.


Home