| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
stafur dagsins í dag er g. guðrún - gleði - gudda - gjörningur - gummsgumms - gotterí. njótið börnin góð. 14:29 |
fyrir ykkur stuðningsmenn mína langar mig að tilkynna ykkur að ég náði almennu sálfræðinni :o) nei ekki með láði, með style. Nei ég er ekki á leið að fagna. mig langar helst að sofa í sólarhring, vera full í hálfan sólarhring og svo aftur sofa í sólarhring. 21:32 |
ég lendi yfirleitt bara í skrýtnu fólki í vinnunni. einn gamall gaur spurði ,,varst þú á næsta bar í gær" og næsti spurði ,,afhverju veit ég hver þú ert? hvað segir þorsteinn ingason þér?" mér er spurn, er ég með kunnuglegt fés eða? það er alla vega aldrei lognmolla því fólk er með stöðuga gjörninga hér. 20:31 |
20:24 |
þegar fólk segir upp par-áskrift þá langar mig að faðma það og segja þetta verður allt í lagi, þú getur þetta. það kom ungur maður áðan með ææ svip. og ekki batnaði það þegar hann þekkti annan kúnna og sá spyr hvað ertu að gera. Einsamall gaurinn stamaði aðeins, fann ekkert sniðugt að segja og lagði þá málin á borðið; ,,er að hætta með konunni, bý núna hjá mömmu og pabba.." þeir voru svo asnalegir greyin. næsti maður spurði mig hvort að áttan sem ég skrifa sé kennd í skóla, af því að ég geri 2 hringi í stað slaufu átta. 14:31 |
10:23 |
Guðrún viltu senda mér fyrirhugað djammplan sem allra fyrst, þarf að samræma vaktaplanið mitt við þig :) 20:21 |
![]() hlynur hress að vökva blómin í karfavoginum. ca. 1987 en gæti þó verið 1957 miðað við sólbekkinn sem mér finnst magnaður. 14:10 |
tomorrow tomorrow I love you tomorrooow... komst að því, að sumt af því sem maður segir við foreldra sína muna þeir actually. Fékk ,,gangi þér vel á morgun mail" áðan frá pabba. Nettur plús. Svo er mamma líka hress. Þar sem að ég fann ekki peningaveskið mitt núna um helgina skrapp mamma á hverfis í gær því ég blæddi í kaffi þar á fös og viti menn og konur, það fannst! og móðir tróð því inn um lúguna í morgun, þannig að það er krambúlerað og sætt og mig langar í nýtt :) mamma fær stóran plús. Er nefninlega að halda skrá yfir þetta foreldrar mínir. finn á mér að á næstu árum mun heimsveldi bryddarans stækka og hver veit nema ég deyji á undan ykkur. ég ætla einungis að vera með hresst fólk sem sýnir öðrum samhygð í erfðaskránni, ekkert svona ég verð af því að við erum svo skyld. 11:48 |
santa wrote back "send me your mother". 21:41 |
ekki amalegt að vakna við súkkulaðibitakökuilm, nýtt kaffi og jóla-smashing á fallegum sunnudegi. ég ætla bara að borða jólakökur í dag, ekkert annað. komst að því í gær að ég er að fara í próf á þri en ekki mið og er bara hress því það þýðir að ég get skellt mér í vinnujóladrykkjukæruleysið ekki á morgun heldur hinn :) og þann dag get ég sagt ash ekki á morgun heldur hinn. 13:59 |
|