bryddarinn


rós
sigur rós var snilld. var og er gáttuð á dýrðinni. mér fannst mjög gaman að þeir skildu líka taka lög af ágætis byrjun þar sem að ég hef aldrei áður heyrt þá live. gleði gleði. síðan var bær með gumma og val. hverfis tekinn þéttum tequilatökum. fíla mig frekar spænska. skella einu í sig edrú og fín, bara rétt til að vakna. en er það guðmundi alfarið að þakka að þynnka er engin. takk fyrir. mesta snilldin var að sjá allt í einu rósu í miðju djamminu. fyrir fáfróða bjó rósa í london í mörg ár og er vinkona aldísar og völu. ég hef kynnst henni vel undanfarið árið á mínum londonartrippum og hún er snillingur. rósa býr núna í usa held colorado með systur sinni og var að byrja í skóla. rósa á japanskan kærasta sem er kallaður k og er að koma í heimsókn hingað yfir jólin. rósa var hress á djamminu með bjössa og snorra thors. nauðsynlegt að fara í bæinn og láta eins og fífl.


rosie


m
algjör óreiða ríkir hjá ingu þar sem að hún veit ekkert hver stafur dagsins í dag er. Inga mín, hann er m.
mandarínur-mygla-matarboð-massi-múm-miðgildisflokkur.



s
er stafurinn dagsins í dag. sund-staðalfrávik-síld-slembivilla-SIGUR RÓS


sjodir@hi.is
sáttamálasjóður háskólans hefur fengið nýtt mail. wtf!

ég ræddi við ónefndan londonarbúa í fyrradag og þar var sú ákvörðun tekin að muni eyða þar næstu mánaðamótum í þeirri stórskemmtilegu borg. ÚTSÖLUR ÚTSÖLUR VEI VEI VEI. ég og 5.000 króna yfirdrátturinn minn munum tröllríða londres. í dag er afmæli af því að það er VIKA Í GUDDU!!!! vúhúúúúú til lykke til! lykke med dagen. hún er með járn í eldum, gellugjörning.



muy bien
tónleikar massaðir hér, taka 2 í þessum töluðu orðum og veit að það verður ekki síðra. magnað að fyrir framan mig í röðinni inn í hallgrímskirkju (sem náði niður á skólavörðustíg) var enginn annar en aðferðafræðimógúllinn Jón Torfi! langaði svo að byrja á nettu spjalli, reyna að ná aðalatriðunum upp úr honum því ég er lost í þessu. hefði kannski getað keypt hann með backstage plöggi... eða ekki. tónleikar voru meiriháttar, védís og margrét eir magnaðar saman, valgerður guðnadóttir orðin brill í klassískum söng og hélt afar hátíðlegum blæ yfir þessu. flottast fannst mér (fyrir utan fédd audda) öll hljóðfærin. þarna voru fiðlur, selló, trommur, gítar, bassi, básúna, horn, trompet, harpa, píanó, you name it, there og öllu stýrt snilldarvel af Lárusi H. Grímssyni. einnig voru snúllurnar mínar í vox femine æðislegar flottar í nýjum búningum. judge for your self on the 24th. bara eitt. hreimur ef þú ert að lesa, ALDREI aftur reyna að þenja þig í kirkju. takk.


música!
á eftir eru það flottustu jólatónleikar fyrr og síðar í hallgrímskirkju, á morgun sigur rós og eftir viku ash & coldplay. guði sé þakkargjörð fyrir sinn gleðilega boðskap.


skífur
þetta er hið besta mál. það sem er að blíva er að þurfa ekki að snúa við hverja 25 metra, heldur hverja 50. það gefur auga leið að ég syndi þarf af leiðandi lengra því ég er fljótari með þessa venjulegu 600 m (más o menos). Það var tekið nokkuð vel á móti mér en konurnar í afgreiðslunni hefðu mátt þó mátt vera hressari. gallinn eru helv.. lyklarnir. þessi bönd eru svo gölluð hönnun og þarf sér próf á þau. á leiðinni úr sturtu heyrist í kallkerfinu (nei ég er ekki að grínast það er kallkerfi inní klefunum),,það vantar skífur" þá er það draslið sem að maður setur ofaní apparatið til að læsa skápunum. þetta er maus. þá hitti ég líka gamla konu sem var alveg lens af því að einhver var í skáp 367. öll önnur númer voru laus í röðinni nema hennar. hún var svo gáttuð og vissi ekkert hvað hún átti að gera. ég sá að henni leið illa og fór því að tala við hana og urðum hinir mestu mátar. svo gaman þar sem að ég er búin að læra sálfræðilegu hliðar þess að eigna sér staði... laugardalslaugin fær 3 rokkprik af 4 mögulegum. svo er einnig gaman að geta þess að ég hamaðist með lylkinum á vitlausum bíl á leið heim. úbbosí.


in da shoe
veit ekki hvort fólk er almennt að fá í skóinn, en stekkjastaur gaf mér jólalagið með smashing pumpkins í nótt. í gær fékk ég fyrir jól fyrir jól þegar dagur fer hægt að kaupa margt fallegt og allt það... það stefnir ekki í kartöflu þar sem að ég hef verið einstaklega dugleg í alla staði. læra, work out, syngja jólajög og ég veit ekki hvað. núna verður laugardaglslaugin mössuð í rigningunni. vona að ég verði ekki lamin af fastakúnnunum þar sem að mitt crowd er westside. takk stauri.



collis
þetta fengum við vinir hans james sent í dag...
Happy hump day everyone!!!!! We have two days left for this week to end, and we have 14 days left until the birth of Christ: CHRISTMAS!!!!!!! Hope you all have a smile ear to ear and keep it throughout this hump day!
"He who conquers others is strong; he who conquers himself is mighty." — Lao-tzu, the first Chinese Taoist philosopher (6th century B.C.)
The TRUE SAGE

hann segir svo oft hump day. eru miðvikudagar einhverjir kynlífsdagar? þið sem stundið það látið mig endilega vita. hugsa að ég svari james eftir nokkur ár, hann verður örugglega glaður að heyra í mér.



saludos para catz
,,Cadiz var og er fin. Kom i sjalfa borgina i fyrsta skipti i dag og bordadi hadegismat, fra 15 til 17, a einum besta restaurant i baenum ! Not bad at all. Allir i Cadiz bidja ad heilsa Kotu."

er pabbi minn dottinn í það, eða ert þú svona eftirminnilegur charles?


á diskinn minn...


Gwyneth Paltrow hvað! hún er ljót við hliðiná Helenu fögru.


baby collis
ég var einhvern tímann búinn að segja frá því að ég skemmti mér á spáni í sumar og talaði við fólk. m.a. kana í zaragoza sem að ég talaði við í ca. 1 mínútu, hann bað um e-mail adressu eins og allir bjálfarnir og einhverra hluta vegna bjó ég hana ekki til heldur gaf þá réttu. Síðan þá hafa meilin streymt frá honum James Collis með alls konar gullkornum og einnig frá bræðrum hans þeim Jason og Ken án þess þó að ég hafi nokkrun tímann svarað. núehhh af Jason er það að frétta að hann og Jocelyn eiga von á barni! þau eru búin að fara í fyrsta sónarinn og Jocie þjáist af miklu morgunógleði. Við hjá bryddaranum óskum þeim til lykke!


gwyneth paltrow



Your Inner Blonde is Gwyneth Paltrow


Your lame Oscar acceptance speach had us all gagging, but then again,
you do enough gagging for the whole world.
Grow an ass, and than maybe your looks will overshadow your dull personality.


magnað! ég sem hef einmitt átt í vandræðum með að finna rassinn á mér! mjög erfitt þegar kemur að því að klæða sig og fara á klósettið. ég hef aldrei fílað paltrow, skil ekki hvað benni affleck var að gera með henni.




ég flengdi prófið í allan helv... dag og skellti mér til trútza í kvöld! hún gaf mér þennan undurfagra disk og er lag 6 - Hann elskar líka þig, með Féddu og Margréti Eir uppáhalds uppáhald. þetta er lagið sem að lauren hill og einhver önnur gella tóku í syster act uno dos tres hverjum er ekki sama. tilfinningaþrungið moment í klaustrinu, alveg rosalega fallegt. Mamma ætlar að bjóða á tónleikana en stefnir á að kaupa miða á morgun, svo að ég vona að það sé ekki líka uppselt á fyrri tónleikana. Það er búið að bæta við lögum sem eru ekki á disknum og þetta verður magnað. Svo fékk ég líka jólapakka áðan sem er frá Vé og Al og mig langar svo að opna því að þær gefa mér alltaf svo fallegt :) en ég þrauka í 2 uger. fédd fer næsta föstudag til florida og aldís kemur ekkert svo að ég er að hugsa um að gráta núna. annars fékk ég sniðuga londonarhugmynd áðan að þetta verður allt í lagi. ætla ekki að segja þar sem að aldís gæti slysast hingað...



inga
á sætustu frænkur í heimi! þarf ekki nema að kíkja á þær Heklu og Hönnu og þá líður mér vel. Svo er inga líka sniðug, hún býður upp á þetta.


Lokapróf á morgun
Af gefnu tilefni er ítrekað að lokaprófið í almennri sálfræði er á morgun, mánudaginn 9. desember.
Megi mátturinn vera með ykkur.
Stjórnin


ég ætlaði að fara í strætó til aní en þá hringir krissa nývöknuð og segir mér að hún sé að koma að ná í mig. pælum aðeins í því. krissa er klárt kvendi.


á morgun
er próf. vúpsídeisís. en ég á góða sálfræði vini og við ætlum að bora upplýsingum í hvort annað í dag a la trivial pursuit :o) gerum okkur svo glaðan með pizzu eller einhverju góðu á meðan fritzson fer og massar mörkin. Pabbi fór til Glasgow í morgun, svo London og Cádiz sem er víst einn af fallegustu stöðunum af Spáni. Held að það eigi við um alla staði á þessu landi, nema kannski Bilbao sem er iðnaðarógeð. Ekki fara þangað. Eins og bíófróðir menn vita þá voru öll ,,Kúbuatriðin" í nýja James Bond tekin þar. Skil samt afhverju það mátti ekki vera Cádiz, e-ð meira kúl að hafa það Kúbu? má bond ekki vera innan sömu heimsálfunnar? Kata var einu sinni eitt sumar þar og segir að ströndin sé sú fallegasta og var hún dugleg við að hanga á barnum þar sem að bond fær sér Mojito og Berry mætir til leiks. Hún hafði verið á öllum þessum stöðum og gat næstum því bent á húsið sem hún bjó í. gaman.


Home