bryddarinn


sjéní
"What a man accomplishes in a day depends upon the way in which he approaches his tasks. When we accept tough jobs as a challenge. . . and wade into them with and enthusiasm, miracles can happen. When we do our work with a dynamic conquering spirit, we get things done."
- Arland Gilbert


já ég er búin að þrá þetta lag svo lengi að ég át það í græðgi minni!



Benedikt er að nudda mig, hann er svo mikill rass! hann ætlar að nudda endalaust af því að boddý kom með pizzu og friends. hann getur sungið hér þessi. og gleðin heldur áfram því MÓÐIR Á AFMÆLI! ég fór í vinnuna til hennar með glaðning og hún er hress. Einnig er hún Krissa 23 ára í dag. Fékk að njóta hennar, Kötu, Bjarna og Aní í sálfræðiglensi í dag. meira af því takk.



2 mínútur í Veddarann
9 dagar í Sigur Rós
14 dagar í Ash
15 dagar í Guddu & Daða
19 dagar í flottan jakka


Takið vel á móti Ingu og Herdísi börnin góð. Fyrir fáfróða má geta þess að þær voru í hinum bekknum í álftó, sem mér þótti almennt leiðinlegur. einu skiptin sem við í emminu lékum við þau var þegar etja þurfti kapp í fótbolta og brennó. En þessar 2 voru algjörar undantekningar. sniðugar gellur sem mér þykir endalaust vænt um :)


ást er að kyssa rass
seint í gærkvöldi fór bryddarinn út að hlaupa. hef þjálfað með mér ákveðinn hlaupastíl svo að menn taki ekki upp á því að ráðast á mig á göngustígunum. ég er nett vigaleg. en gaman að geta þess að ég mætti austurlenskri konu í laugardalnum. Hún var ekkert hress og svo kom vinkona hennar keyrandi og gargaði e-ð á óskiljanlegri tungu, en vinkona mín vildi ekkert gefa sig og hélt áfram röltinu. hefði verið gaman að skilja. kannski var þessi í bílnum ófrísk eftir kærasta hinnar... En ég ætla ekki út að hlaupa í dag. Læt mér nægja að horfa út um gluggann á börnin í vogaskóla í sadó-masó körfubolta.



foxy during christmas
eins og glöggir lesendur greina, þá leiðist mér. af því tilefni hringdi ég í magneu mína á á mojo og lét hana búa til tíma fyrir mig daginn eftir próf :) hún gat ekki annað, því að án mín þrífst hún ekki í slúðurbransanum. það er nákvæmlega ekkert að hárinu mínu, en kannski þá... hver veit? alltaf gaman að gleðja vegginn á móti mér með fallegri greiðslu þar sem það stefnir í prufung í janúar. en sei sei, get samt sveiflað jóladúinu framaní ash!


trútz
í tilefni af trútza tali vil ég benda á að trútzi trútzanna er væntalegur á land okkar ísa Á MORGUN!!! Reykjanesið mun njóta hennar fyrst um sinn, en ég heimta heimsókn um leið og lending er í menninguna :)




meine Damen und Herren!
við kynnum til leiks: BARBÖRU GOETHE! hún er komin yfir í fasteignabransann og líkar vel.


wir wollen zu das Goethe-zentrum fahren
kærleiksbirnir leggja mis mikið traust á þýskukunnáttu mína. Skil það ekki þar sem að ég er altalandi í þessu gífurlega fallega máli. Hver man ekki eftir 250 ára afmæli Goethe árið 1999?! man að við kata notuðum tækifærið og vorum með gott stand-up í tilefni þess arna. fundum konu að nafni Barbara Goethe með grænan augnskugga. Hún er búsett í usa og stundar garðrækt.
og allir með!


Abendlied
Über allen Gipfeln
ist Ruh,
in allen Wipfeln
spürest du
kaum einen Hauch;
die Vögelein schweigen im Walde.
warte nur balde
ruhest du auch.


ich bin das Mädchen dem Publishen! jawohl!



í dag býð ég uppá trútza!!! (Hlynurinn til hægri og Bensinn vinstri)




gunni frændi hefði átt að hugsa ca. 15 ár aftur í tímann áður en hann fór að setja út á fríðu og hennar módelstúss. ekkert til að roðna út af, myndarpiltur, sver sig í móðurfjölskylduna.



ÉG HATA ÍSLANDSBANKA! var að hringja til að athuga hvenær sparireikningurinn minn opnast og það var attitude! djöfull ætla ég að breyta launareikningnum mínum hjá símanum yfir í BÍ og um leið og sparipakkinn opnast færi ég monningana þangað. Ég finn ekki ísl.banka debetið mitt síðan í einhverju paniki í smáralind um helgina (hélt að bílnum hefði verið stolið en var hinum megin við huset) og ég ætla ekki að endurnýja það. BÍ kortið mitt er nýtt og fallegt og svo gera þeir gjörninga eins og að lækka tölvuna mína um 10.000 kall.


benediktus
er kominn með nýja síðu. Koma alltaf upp einhver error mál sem verða til þess að hann býr til nýja. Ég er á besta stað, fyrir ofan diskókúluna sem er glæsileg. Var að spá í að láta mömmu fara að blogga. Held að það yrði æst fyndið. Hún er alveg týpan til að tapa sér í því. Benedikt þú ert settur í þá nefnd.


bíbí oliver
það var einhver leti í fyrirtæki í lindu p og allt lukket í dag! Fór í hús baðsins, lokað, þá var það þrekhúsið, en neeeiii lokað! svekkjandi gráðuga bollan þín, ætlaðir að ná sunnudagsraslinu af þér en situr með það á bömmer! Nú þá fór ég í melabúðina, verslaði og sá um kvöldmatin. nei nei, mér líður ágætlega fyrir utan einstaka fellingar.

Pasta a la bodd bodd:
spelt pasta (vollkorn)
túnfiskur í olíu (ein dós)
kús kús (with sun dried tomatoes and meditarrenian herbs)
ólivur (espanola - heil dós)
tómatur (1-2, eftir stærð, skorinn smátt)
gúrka (eftir þörfum, skorin smátt)
sólþurrkaðir tómatar
kryddað með garlic powder og smá olíu af sólþ.tómötunum og/eða ólívunum dreift yfir.
dashes of white vine vinegar er líka gott útí en það var ekki til.

Bon appetit!




mér til mikillar ánægju og yndisauka unnu valsmenn ír-inga með 12 marka mun í gær! ótrúlegt markahlutfall miðað við 2 efstu liðin í deildinni. Bráðnauðsynlegur sigur, með tapi hefðu gettóbörnin komist í efsta sætið en það er náttla ekki að fara að gerast. Geir Sveins er duglegur maður, stundar bókhlöðuna grimmt enda að mastera viðskiptafræði. Situr einbeittur á svip með þráðlaust netkort að búa til fínerís leikkerfi.


Home