| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
fór á frábæra tónleika í boði ske með gumma og góðu fólki :) guðmundur steingrímsson (píanógaurinn) var endalaust fyndinn (jú þú líka gumms) og var stemmarinn meira svona eins og góð hljómsveitaræfing. Allt voða heimilislegt, þó að eitt stykki lag fari út í rugl þá var það bara gaman og tekið aftur! ,,svona á ekki að taka lagið, en núna skal ég sýna ykkur hvernig á að gera það..." húmor fremur artifarti! Bærinn var bara bærinn og ekkert um það að segja, nema þó að ég hitti ásgeir orra einarsson á vegamótum og þekkti hann ekki, enda var honum varla farið að vaxa skegg síðast þegar ég hitti hann. Hann er alltaf jafn hress, er að vinna í stúdíó sýrlandi en ætar aftur til L.A. í bráð. Hann biður að heilsa ykkur öllum! Mig langar í álftó reunion... 16:06 |
er lúði. Var of seinn að skrá sig í rímnaflæðið og fékk því ekki að vera með. Held að Hlynur sé Maple. Hérna er takturinn sem að félagi hans samdi og Hlynur hugðist rappa sinn texta á. 02:15 |
ég skutlaði móður á jólahlaðborð og hún var og er ekkert smá sæt! mér leið eins og ég væri mamman að keyra hana á ball. Rosa grönn og fín. Ég ekkert smá montin. Vona að ég muni líta út eins og hún í framtíðinni. Vera eins og hún? veit það nú ekki, skapið á til að fara með hana (nei aldrei mig ég er stabíl!). Hún á afmæli í næstu viku og ég er að snappa á þessum afmælum!!! Greyið Sara systir fékk Írafár í afmælisgjöf en ég mætti og lét hana hlusta á Leaves. Sjáið þið ekki mig fyrir ykkur stjórna því. Right. Hún bara já já, hef heyrt þetta lag og hlustum á HRINGI! ohhh þetta gengur ekki. Það var söngvakeppni hjá henni og vinkonum hennar og bara sungin lög af fárinu. Er samt komin dágóðaleið með að koma Bennanum til manns. Hann fílar laufin og skrifaði ég eitt stykki og setti á borðið hans áðan :) já Benedikt minn það bíður þín. Hvar ertu? og Hlynur! varst þú ekki að rappa af þér rassinn í rímnaflæði? Dónde están los chicos? 01:55 |
sumar stelpur vita ekki hvað þær vilja í jólagjöf (eiga allt, dekurfífl!) Þórey benti mér á sennilega flottustu jólabókina í ár. Stelpur það er alveg málið að hafa einn svona inní eldhúsi! ![]() 14:35 |
cumpleanos feliiiiiiz, cumpleanos feliiiiz! í dag föstudaginn 29.nóvember er hún Sara Mildred systir mín 12 ára. TIL HAMINGJU!!!!!! Hún verður með náttfatagjörning í Akraseli 25 í tilefni dagsins og ætla ég að mæta í þeim eina tilgangi að grenna mig með tilheyrandi pizzum og góðgæti. Best að sofa, ætla að skutla pabba, afa og frænda eldsnemma í fyrramál til kef svo að ég hafi bíl. Hvað er ég að spá samt að vera ekki að fara með?! Djöfull skal ég massa útlandið alveg bráðum. 00:28 |
ég hitti hana Mæju, Davíðs Þórs (frændi al og vé) konu og ex MR-ing áðan og spurði hana spjörunum úr (hún er mega sæt) varðandi B.AAAAA. í hagfræði. Svei mér þá það er málið í dag ef að ég koksa á herra skitsófreníu. Annars er allt gott að frétta fyrir utan það að ég get ekki haldið mér vakandi og hugsa grænt. Effedrín óskast, óinnbirt og í stórum skömmtum. 16:15 |
please forward this message to all of your friends immediately. It´s really important, if not their computer will explode and that will have serious consequences on their genitals and therefore future happiness. Share the moment, share life! 12:29 |
þó að ég sé kannski fallin á önninni á ég alla vega pening! mútt krútt gengur hratt til verka. Sendir fyrirspurn um bankanúmer og splæsir inn á hann nokkrum pulsum og kók með det samme! (ojjj nei ég ætla sko frekar að eyða þessu í spelt brauð og kaffi, núehh eða grænan bol.) Dream on að hún geri þetta fyrir ykkur. Hún er öðlingur hún Sigga Bryn og færir ljós inn í svartnættið sem að þessir dagar eru. Það eru próf, það er myrkur og það er feitur euro maður sem að sefur við hliðina á mér og hrýtur! oooog bráðum er það SKE! TAKK MAMMA 17:33 |
lattu skammdegid ekki na i rassgatid a ther!! Thu veist ad vorid kemur fljott! þegar svona saludos koma frá londres verð ég öll hress! það var einmitt fullt af londres í bondinum. Leitaði að þér aldís min en fann þig ekki! þú veist líka að Bryndís kemur með vorinu :) nú eða bara helv.. snjónum! hvað á ég að meika fram á næsta vor án þín! ó nó, not happening! 23:55 |
er komin hér glóðvolg af nýjum Bond. Ég týndi mér alveg í gleðinni og hefði meikað meira! ótrúlegt, bodd bodd og súrrealískar myndir farnar að bonda :) Íslensk bílnúmer, íslenskir klakar og gerviklakar sem að bondinn surfar á, eru í aðalhlutverkum. Auðvitað bara stimpluð í topp 3 af öllum bondmyndum þrátt fyrir glatað lag sem að madonna tölvusyngur svo skemmtilega a la cher. Skál. 12:14 |
Já börnin góð miðar á Sigur Rós eru komnir í hús og ætla ég að eyða tímanum fram að því í að hlusta á ( ) og drekka dream time tea a la whittard. Skál í boðinu. Kata og Aníta hringdu í mig í gær og skipuðu mér að mæta á Suðurgötuna. Mikið grín, mikið gaman. Vorum að reyna að átta okkur á að önnin væri alveg byrjuð og vel það yfir pizzu, nammi, friends og nokkrum vel völdum línuritum. Knús & kram. 16:32 |
Hildur er á lífi!!!!!! Æ vos getting ríllí skerd. Góður djús á Spáni. Tótisif var að benda álftmýringum á jónsa eggert og vil ég benda ykkur á þessa myndasíðu (don´t know the fellah). Þarna gefur að líta kunnugleg fés og það fallegasta er án efa... ![]() 19:50 |
hæ, ef þú ert í Odda (háskóla íslands) viltu þá kíkja á einkunn fyrir mig sem hangir á rauðu töflunni. Þetta er hlutapróf 2 í aðferðafræði I. Númerið mitt er 2807-6189. Ég er kannski full bjartsýn þar sem klukkan er 19:30 á sunndegi, en ef að það er kominn mánudagur máttu endilega kíkja þar sem að ég á ekkert erindi þangað. Ég er að veðja á 5,2. 19:36 |
|