bryddarinn


scala-pabbi
Pabbi og Bergþór Páls tóku 2 lög saman í gær og ég er steinhlessa. Pabbi heldur lagi og vel það, en rólegur með röddina! Hélt að hann væri gott efni í einn íslenskan elvis en við erum að tala um óperupabba. Fyrri hluta kvölds var fólk meira að forvitnast um hjúskaparstöðu mína og mennt, en er líða tók á glensið hættu tjéllurnar ekki að tala um að ég væri alveg eins og mamma og hvað pabbi var alltaf yndislegur við mig. Síðasta fólkið sem fór út var vel helað og var ein fín frú sem ég aðstoðaði niður stigann, sem hélt í ljósastaur á planinu á Hlíðarenda, enda ekki á færi allra að halda jafnvægi...
En þar sem að ég á ekki disk með pabbs þá hefur Badly Drawn Boy haldið mér brosandi síðastliðna daga með snilldinni Have You Fed The Fish. Vona að Damon sé óþrjótandi.




krulli
ég fékk þig með kaffinu í morgun. Þú ert sæt.



s2000 djammanú!
myndir síðan á árshátíð Single 2000 eru komnar á net með hjálp lekkers manns.GLEÐIN


MI PADRE TIENE CUMPLEANOS!!!
Hann er 50 ára!!! svei mér þá gleðin ein sem ríkir. Ég er pakksödd eftir Ítalíu áðan og þarf að fara að vinna að matarlystinni fyrir Naustið í kvöld. Það er allt alveg eins á Ítalíu þrátt fyrir bruna. Þessi staður er snilld og el precio sanngjarnt. Greyið pabbi var vakinn fyrir kl. 7 í morgun, bundið fyrir augun og keyrt með hann heim til bróður hans og hent útí ker með heitu vatni sem var útí garði, í náttfötunum og sloppnum. Svo er hann að skjótast í nudd og fótsyrtingar á milli þess sem hann hleypur í vinnuna. Svo annað kvöld verður stórafmælið massað að Hlíðarenda.
897-8202 og hoerdur@itferdir.is fyrir heillaóskir.



góðan daginn
Skellti mér í 2ja klst. fyrirlestur um geðklofa, þunglyndi, einkenni, ástæður, líkamlegar orasakir, sálfræðilegar orsakir og sa videre. Komið börnin góð ég býð upp á skjótan bata og jónsmessurunna á tilboði, aðeins 1.999 kr. Ég varð samt hálf hrædd við sjálfa mig eftirá. Kannski er ég þunglynd, haldin ofstæki eða e-ð. En mamma segir mér að ég sé of skynsöm. Fyndið samt, við erum að tala um sálfræðilega SJÚKDÓMA og mamma segir að ég sé of skynsöm. Fæ ég þá ekki krabbamein heldur? bleah.

Ég neita alfarið að hlusta á jólalög, meira að segja smashing, nema snilldina sem Gummi býður upp á með Belle & Sebastian, O come, O come, Emmanuel. Þetta er fríkeypis og þið eruð skemmd ef þið troðið því ekki í eyrun á ykkur!



Ég mæli með inniveru, skrópi, joggingfötum og Joan Baez.


hvað ertu tónlist?
ég massaði menninguna í gær þegar Inga Ásta og Pétur og buðu mér og mömmu á útgáfutónleika Kristins Sigmundssonar í Salnum í Kópavogi. Helmingurinn af dagskránni eru ítalskar aríur og ástarljóð sem að færa fjöll! Ég var yfir mig heilluð og efast um að allir upplifi þessa ódauðlegu ást sem sungið var um, hvernig tilfinningar geti borið mann yfirliði og gert lífið óbærilegt. Þessir Ítalir kunna sko að heilla kvenfólkið með söng. Jónas Ingimundarson var að sjálfsögðu brilliant á flyglinum. Hann fylgir söngvaranum fullkomlega og nær fram blíðum og fallegum tón á þetta magnaða hljóðfæri. Krissa, tengdadóttir Péturs og Ingu, var einnig með og tók mig örfáar mínútur að kynnast henni, enda semur mér mjög vel við fólk sem á afmæli 19.apríl (mín ástkæra, ylhýra Aldís). Eftir endlaust lófaklapp og bravóköll fórum við á kaffi Borg í Kópavoginum ásamt Björgúlfi & Þóru og Guðrúnu Helgadóttur og syni. Guðrún er svo mikill snillingur, var að heimta partý af Björgúlfi fyrir blessaða vesalingana sem væru að reyna að gefa út bækur og sagði sögur af Jóni Baldvini, m.a. þegar hann týndi Schraminu sínu. Guðrún er endalaust hress og blátt áfram.


Jónas og Kristinn



fiesta
gærkvöldið var massað, en ekkert spes. Of mikill áhugi fyrir fríkeypis veitingum hljóp með mig í gönur. og ég komst bara ekkert úr gönunum. Passa sig á þeim. Svavar Örn, ég, Írisber og trommarinn vorum öll svo hress og ætlum að fara öll saman í keilu á morgun. Á heildina litið held ég að kvöldið í kvöld hafi verið það besta við helgina, mín fyrsta tiltekt í voginum átti sér stað og svo skór drekans með Gummster. Myndin er snilld, görlpáver hlaupandi í gönum. Það rann upp fyrir mér mjög sterkt þegar ég horfði á myndina hvað mér finnast tískusýningar leiðinlegt fyrirbrigði. Að horfa á fólk labba fram og til baka í mismunandi fötum upp á palli. Það er miklu skemmtilegra að fara í búð og skoða fötin þar, þá er hægt að koma við þau og jafnvel máta! Svo er alltaf verið að reyna að hafa allt eins skrýtið og mögulegt er, megaflipphippkúl sem að ég næ bara aldrei.



Michael Jackson barn að aldri
eru fréttamenn á mbl að tapa sér. Það er ekki hægt að vera barn að aldri. ,,Hvað ertu gamall? Ég er barn." held bara ekki.


Vitið þið af hverju gamla fólkið er látið liggja í leirböðum í Hveragerði ?
til að venja þau við jarðveginn !


Home