bryddarinn


saiiiim
Já Védís mín, hann Sæmundur var búinn að segja mér plöggið, ég var reyndar undir áfhrifum krakks, þannig að hann þurfti að dusta af minninu eftir þá helgi. Hann var búinn að tala um að gera gjörning en ég var ekki að búast við ÞESSU sprelli. Hann er bara snillingur og á melónutóbak skilið!


mi madre es una mujer increible
hún bauð mér og ásdísi guðmóður minni á hafið í gær og allt heimsins popp sem ég gat í mig látið. Mjög asnalegt að fara í bíó í skólanum, sérstaklega í sal 1 (var salur 2, þið munið ansalegu hagræðinguna sem var bara gerð til að rugla fólk og valda veseni) en læt mig nú samt hafa það. Síðan fór ég heim að skipta um föt og brunaði í bæinn. Kíkti fyrst á mömmu og ásdísi á thorvaldsen og þurfti að tala dyraverðina til því að þeir voru ekki að kaupa ég-verð-að-komast-inn-að-tala-við-mömmu-mína söguna. Ég fékk samt að fara inn með því skilyrði að vera fljót, en ég tafðist þar sem að mamma mín sem er besta mamman þessa vikuna, blæddi í ginebra y tonica. Sagði svo við gaurana á leiðinni út ,,æi sorry, mamma bauð mér í glas" en þeim fannst ég ekkert trúverðug og fundu til í rassinum.

Á brennslu var fríður hluti s2000; Kata, Ásta Beret, Anna Hera og Aní og fórum þaðan á Celtic að hitta Elís ammlibarn og félaga. Vinur hans Ella var nýbúinn að kaupa sér white russian og bauð mér að drekka hann í 2 sopum sem ég og gerði audda! ég heimta meira af svona fyrirmælum. Eiga heima á öllum mínum pallborðum.
svo fórum við kata á kaffibarinn, prikið og vegamót. Mér fannst rosalega gaman á öllum stöðunum og starfsfólkið var glatt á sjá mig fyrrverandi fastakúnnann. Barði var ekki barinn á vegmótum ásamt Henrik og svei mér þá hvað hún Lukka hans er frábær stelpa. Con grats með hana. Hittum svo stelpurnar á Sólon, gott glens þangað til að þær ákváðu að skella sér á GAUKINN!!!! halló! láta skoða hausinn á sér núna takk. Þá skellti ég mér bara í leigara með Kötu og Elís og fór heim að borða :)



dauði fremur en djamm
helvítis djö... andsk.. samsæri í gangi hér. Það var einu sinni stelpa sem fór í vísindaferð og hún dó. The story of my life. Það er vísó næsta föstudag í Baug og brjálæðisgeim á Hlíðarenda þar sem að pabbi minn fagnar fimmtugsafmæli en neeeiiii Bryndís þarf að fara í próf á laugardagsmorgninum, skila rannsókn eftir helgi og svo annað próf í þeirri viku. Held að það sé til vúdúdúkka sem sé ég og að einhver hati mig. Ég ætla ekki að vera á bíl í kvöld, ég ætla að sofa hjá Baldri Bombay.

Lesið bloggið hennar Fédd, hún á mesta snillabilla kærasta ever!



madrid et jubelfag
Hildur er tvímælalaust fyndnasta manneskjan sem ég las í dag. Ég sé þær Beggu ljóslifandi fyrir mér með flyerana og spánverjana á kantinum. Ég öfunda ykkur mikið mikið að vera í Madrid, án efa ein mesta snilld í heimi. Langar í TAPAS og sangríu og rauðvín og meira tapas og jamón iberico og churros og tapas. Rastro markaður halló hér! rölta svo um í Retiro og raula hari krisna. Endlaust sem hægt er týnast og láta sér líða vel í þessari borg.


nágrenni Prado


tralala

ég er búin að vera einstaklega dugleg að rækta samband við vini. Í fyrrakvöld var kaffi og kjaftur á vegmótum með Silju og Heiðu og mikið slúðrað. Fór síðan til Katrínar Magneu í gær og var ennþá meira slúðrað. Katý er flutt að heiman, í íbúðina við hliðina á foreldrum sínum í Neðstaleitinu. Mjög falleg íbúð en K ennþá fallegri. Hún lítur rosalega vel út og er að meika það í lífinu :) er meira að segja farin að baka kanilsnúða. Hún og Óli hennar eiga 3 bíla sem hún hyggst selja og kaupa 1 í staðinn. Mig langar svooo að kaupa annað hvort clioinn eða mini-inn sem hún flutti með sér frá London. Clio sennilega praktískari en hinn er snilld með hálfan breskan og hálfan íslenskan fána á þakinu, bílstjóra sætið vitlausu megin og tilheyrandi. Sendið mér pjéning. Takk.




ása og kata að rífast um hver sé sterkari fonda.og já stelpur myndirnar eru að koma :)


heim
mér líður barasta vel í símanum á laugavegi. eins og ég sé komin heim og allt auðveldara sökum tiltektar í starfsfólki. Magni og Steinunn (spilabúð) voru rosalega glöð að sjá mig og Steina spurði afhverju ég væri að hora mig svona! þetta væri komið gott. þetta litla orsakar bros allan hringinn svei mér þá. x-Steinunn!!!

Á leiðinni í vinnuna mætti ég strák litlu eldri en ég sem virkaði frekar eðlilegur fyrir utan skrýtið hár. En við nánari athugun var hann ekki í skóm né sokkum. Bara sprangaði um á iljunum. Kannski var þetta Mogli, hver veit.


fluga
klukkan er tíu en mér finnst eins og dagurinn megi fara að verða búinn. Vaknaði fyrir sjö, náði að missa tvisvar af strætó og svo þegar mér tókst að komast í strætó ákvað ég að lesa, opna bókina og þar var hjúts fiskifluga að flatmaga dauð í bókinni. Smá panik en ég náði að halda andlitinu.


nýtt æfingaplan
nýja æfingaplanið mitt heitir Fríða Ísbjörg og leggst gríðarlega vel í mig. Tók þunglyndið með mér í Baðhúsið í gær og hitti fífí frænku á leiðinni inn. Við mössuðum 2 klst. af eintómum massa og erum með gríðarlega massaða rassa núna. Ákváðum að reyna að láta leiðir okkar liggja saman nokkrum sinnum í viku til að garga á hvor aðra. Fengum þá sniðugu hugmynd að láta einhvern gefa okkur polar púlsmæla í jólagjöf til að halda okkur á brennslustiginu, því ekki viljum við fara í mjólkursýrurnar. það er leiðindagaur.



>

þetta er bróðir minn og ég er stolt af því


Auðvitað skiptir innri fegurð máli. En málið er bara það að fólk sem hefur líkamlegt aðdráttarafl vegnar betur í lífinu og ef einhver heldur að hann geti bara ferið Fat Bastard og heillað alla með innri ljómun, þá myndi ég flytja norður á land í jólasveinaþorpið.


v
Þegar þú öðlast skilning á því að þú ert í raun "ótrúlegt og undursamlegt sköpunarverk" muntu hætta að hafa áhyggjur af lærunum og hrukkunum og vekur aðdáun með návist þinni. Þú þarft ekki að vera eins og klippt út úr tímariti. Í tímaritum birtast myndir af konum sem eru venjulega fulltrúar ákveðinnar fegurðarímyndar, ímyndar sem er háð æsku og undirstrikuð með góðri förðun, lýsingu og tölvutækni. Það sem þú hefur hins vegar til að bera er ljómi sem hvorki fæst keyptur né niðursoðinn.
Lengi vel lagði vestræn menning ekki mikið upp úr því að sálin ætti að vera fögur. Sennilega vegna þess að engum datt í hug leið til að græða á slíku. Hver svo sem ástæðan var náðu skilaboðin um að innri fegurð skipti svo litlu máli að festa rætur í vitund samfélagsins. Í raun og veru er innri fegurð mikilvægust af öllu því slík fegurð er sú eina sem er varanleg. Þú getur treyst því að hún sé alltaf til staðar, jafnvel þegar þér líður ekki vel, hefur vakað alla nóttina yfir veiku barni eða þegar þú ert orðin tíu - eða tuttugu - árum eldri en þú ert núna. Og vegna þess að sú fegurð nær til innstu djúpa sálar þinnar, geturðu hugsanlega tekið hana með þér yfir landamærin miklu.
Úr bókinni Láttu ljós þitt skína, bls. 19-21.

Las þetta á femin og verð að breik it tú jú að þetta er krap. Hvorki ég né gunni á bolnum erum undursamleg sköpunarverk. Alveg eins og mennirnir séu e-ð nýjasta nýtt og við séum í útrýmingarhættu. Við verðum til við greddu, áttum að lenda í lakinu, það er til allt of mikið af okkur, drepum okkur stundum sjálf og á ég að halda áfram. Þetta girl power er kannski mjög gott, en mér finnst þetta hannað fyrir konur sem að eru svo svekktar yfir holdarfari að þær fara á netið og lesa ,,af stað, í kjólinn fyrir jólin, drullaðu þér úr sófanum..."greinar og alls kyns hollar og girnilegar uppskriftir sem þær prenta út og gera svo aldrei neitt í. Tölta með ljósritið inní eldhús og lesa það aftur yfir með kaffi og heilum pakka af súkkulaðikexi. Ég borðaði einmitt pönnukökur yfir þessari grein og svei mér þá að ég held að pannsan hafi bragðast betur. Held að það þurfi að beita smá Hitler á mannskapinn. Hætta að troða sig út og hreyfa á sér rassgatið! ekki þetta endalausa ÞÚ ERT ÆÐISLEG!



titas
segið mér stelpur, hvort er hægra eða vinstra brjóstið ykkar stærra. Mitt vinstra er aðeins stærra, samt kýs ég sjálfstæðisflokkinn. Skil ekki alveg.


Home