bryddarinn


esta noche
bíll ekki bíll?


dygtig pige
JÁ ÉG! massaði þjóðarbókhlöðu, rækt, vinna og heimsókn til fífí og addos í gær! núeehh svo vaknaði ég kl. 6 í morgun og fór í spinning og svo á hlöðu að reyna að massa meira. ég verð bara að segja að það er svooo gaman að læra og veðrið er svo fallegt :) og ég ætla að skella mér í partý í kvöld til Guðjóns Leifssonar að kveðja Agnar Má, fráfarandi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Símans. Svo á ég líka besta pabba ever! Jafnvel þó að hann hafi gleymt að láta mig vita af seinkun sinni frá Akureyri og látið mig sitja eina á Reykjavíkurflugvelli kl. 8 í morgun eins og ástsjúk stelpa að bíða eftir hnakkanum sínum frá Siglufirði...
Pabbi verður 50 ára eftir 2 vikur, hvað á ég að gefa honum?!?!?! HJÁÁÁÁÁLP!!!! Ayudame porfavor!



hvernig var þetta með höfrunginn sem drukknaði í hafragraut?




maría var ein af þeim sem mundi eftir lögleiðingu handfrjálsabúnaðarins. Held nú að það hafi verið löghlíðni AA meðlimurinn hún Aníta sem átti allan heiður af því trendi. Spurning hvað Berglind er að tjá sig...


Þarna er edrú helmingur s2000, hinir meðlimirnir voru að leggja bílunum sínum á meðan.



Það var einu sinni maður sem þurfti ekki að gera heimildaritgerð og hann dó!



það er svooo lekkert í þessum.


madrid
þar sem að ég hef nóg af áskapaðri og áunninni greind var ég að fá svo skemmtilega hugmynd. Hvernig væri að skella sér til Madridar í byrjun 2003? Mitt lið fær Valencia í heimsókn 5.janúar! Farin að sakna Roberto Carlos og hinna strákanna. Hef ekkert haft samband við þá síðan Ronaldo fékk að vera með. Catz ég veit að þú ert geim. Massaðu einhverja vinnu um jólin og svo fliiiipp!


inteligencia
er greind áunnin eða ásköpuð? ef þið hafið skoðun, share. Alltaf gaman að fá fersk sjónarmið í umræðuna.




Find your inner Smurf!

Ég hef mjög svo gaman af heimildarritgerðum þannig að ég ákvað að finna minn innri strump og svei mér þá ég er málarastrumpur! veit ekki hvernig í ósköpunum þeir fá það út, mála lítið annað en fjésið á mér á laugardagskvöldum. Tótla er beib strumpurinn ÝKT HEPPIN!


Takk Gumms fyrir að laga kommentin :)


drasl
ég er drasl. Get ekki haldið mér vakandi þannig að ég fór af hlöðunni og ætla að sofa. Þessi ritgerð sem á að vera að klárast á eftir að verða skrautlegur pakki. Ha núúú áttum við ekki að gera gjörning... gæti til dæmis sagt það bara.




Þetta eru Anna Hera og Ása. Þær eru s2000 megagellur!


Páps
Pabbi síðan OKKAR er alltaf á ferð og flugi. Mjög flott.


Ég tók myndir sem að ég mun setja inn seinna í vikunni :)


sukk, svínarí, slumm og slef!
Jæja gott fólk þá er fyrsta formlega árshátíð s2000 að baki. Þetta var ruglirís rugl skemmtilegur dagur. Besta af öllu var hvað Aníta feisaði okkur feitan með því að ljúga okkur stútfulla af Ingibjörgu Sólpúbu! Kata hélt því nefninlega fram um daginn að Aní gæti ekki logið,svo hún ákvað að sýna okkur í alla heimana og ljúga því, svona líka snilldar vel, að Inga Sóla myndi taka á móti okkur á Radhuspladsen. En þar var okkur skipt í 2 lið og var survivor feelingur í gangi. Þurftum að komast að bjórslagorðum, skrifa klúrna ritgerð, skila inn smokk og fleira glensi. Mitt lið var svo hresst að við skelltum okkur á grandrokk að teiga mjöð og leggja skip. Við erum að tala um 8 stelpur í jane fonda dressum með marga stóra bjóra, þó nokkuð af rónum, fótbolta í sjónvarpinu og klukkan ekki orðin þrjú. Þetta var snilld og einn gaurinn var mjög hrifinn af Kötu, enda var hún í bleikum g-streng yfir leggings. Endastöð var á Barónstíg þar sem að hinn hópurinn var löngu kominn og við fengum kynningu á gervityppum, eggjum og fiðrildum í Exotica shop. Halldóra og Heiður fjárfestu meira að segja, enda bara rugla að eiga engan eggert... Síðan var það strætó sem endaði í íþróttasal Hamraskóla í Grafarvogi. Þar tóku við alls kyns þrautir sem enduðu með tveimur dansatriðum sem við sömdum á staðnum. Síðan voru það samlokur, freyðivín og sturta á staðnum. Þaðan var farið í tveimur ferðum í limmu í bæinn! ég hef aldrei farið áður í limmu og það var GEÐVEIKT! freyðivínið flæddi að sjálfsögðu yfir allt þar og kanturinn últra hress. Þá enduðum við á Borginni í kjúlla og eftirrétt. Mjög gott og gaman þrátt fyrir drasl þjón.
Toppurinn var krýning nýs formanns s2000 sem hún Heiður hlaut. Í tilefni af því fékk hún g-bletts leikfang og var það enginn annar en GEIR ÓLAFS sem að kom til að afhenda verðlaunin. Hann hélt ræðu sem innhélt mikið af Leoncie og svo auðvitað heimtuðum við lagið og það var rosalegt. Hann tók love me tender á ensku og TÉKKNESKU! hjálp hvað þetta var gaman. Síðan var dottið í drykkina á Borginni og var svo komið að stelpurnar hoppuðu sumar uppí fínu sófunum í góðu hipp hopp glensi. Þá fékk ég illt í magann. Fundum Ása deutschkennara úr MR og tókum myndir af honum :) Þaðan var stormað á Kaffihúsið við hliðina á astró og fengum þar fría kokteika og skot. Þar var flipp til ca. 1 og þaðan sprell á Kaffibar, Tres Locos og endað á Sólon í góðu geimi.

Elsku Aníta og Berglind takk æðislega fyrir frábæran dag! ég er ennþá í vímu :)


Home