| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
morgun gleði hvað! morgun ógleði kannski! Það er alla vega massíf stemmning hér. Var að brussast við að setja eldgamal bleikt naglalakk á kantinn og er með legghífar á öllum útlimum. Jóhanna fimleikabeib á mikið af þessu, hún er þessa stundina í flikkflökkum í Frakklandi en reddaði mér engu að síður. Snillingur! Sem og Kiddi hennar og minn! Get ekki valið á milli þannig að ég er að hugsa um að vera í þessu öllu. Held að veiti ekki af sökum kulda og svo er þetta patent fyrir gott fonda stripp. Ég er rúllandi litríkur bolti. Svo gaman að vera í svona ekta fimleika samfesting með legghlífar og taka handhlaupin með tilheyrandi fettum og brosum. Benni lánaði mér digital vélina sína og ég ætla að læra á hana í gleðinni á morgun. Svo á eftir að ákveða búning fyrir annað kvöld...alveg nóg að gera. Fór í sund og ljós áðan til að hressa mig við. Prófið sem gekk annars vonum framar, dró allan kraft. Var og er svo kát yfir 25% spurningu sem mér fannst ég rúlla upp! Þessi spurning gildir sem sagt 0,5 stig af lokaeinkunninni:):):) Var að spjalla við Aní og hún er bara í bjórnum að hlusta á wake me up, whitney og footloose og að sauma svitabönd ásamt Önnu Heru og Ólöfu. Sagði pass á þann stemmara, ætla að flikkflakka þetta í g*rn á morgun. Takk fyrir kveðjurnar krulli. Kysstu Öddu Stínu frá mér :o) 00:52 |
var að lesa hjá Dodda og hlýnar alltaf um hjartarætur þegar skáldskapargyðjan heltekur hann. Eftirfarandi er án ef það flottasta sem Doddi hefur samið hingað til og kom meira að segja út í ljóðabók meðan við vorum í MR: ÁRSHÁTIÐ SMEYKUR BOLI HÓRDÓM FREMUR, SLÍKUM ENGUM FLEIRUM TEMUR, FREMUR SKEMUR? Takk. Doddi. Svo er hérna alveg nýr eðall: VEGURINN LANGI FARIÐ HAFA MARGIR VEGINN LANGA, ÞÓ EKKI SÉU ARGIR ÞEIR SEM GANGA, ÞAÐAN ENGINN SNÝR MEÐ FÍFLUM FÖGRUM, Í HVERJUM SEM ÞAÐ BÝR JAFNT Í JAFNDÖGRUM. Takk fyrir mig, allt gamalt folk teygja. Doddimus Maximus. 15:59 |
ég er búin með pening fyrir nóvember, hann rétt náði í euroið, lækni og ves í morgun. Svo gaman að þessu. En Ebbi frændi ætlar að vera hjá mér e-ð lengur og reyna að halda mér uppi. Svo hress þessi Ebbi. Annars er ég súr, mega mega súr og er búin að ákveða að verða ekki hress fyrr en á morgun kl.13:56. Hef ekkert við hressleikann að gera fram að því. 13:02 |
jamm og jæja, ég var að enda við lestur mbl og þar var viðtal sem Ásdís Haraldsdóttir vinkona mín tók við einstaklinga úr overeaters anonymous. Ég skellti mér á síðuna þeirra og tók sjálfsprófið. Það kom mér ekki á óvart að ég væri talin með vandamál, en til þess þarf að svara þremur spurningum eða fleiri játandi. En halló hér, ég er alla vega með já við helming þeirra!!! madre mia, ef þið viljið tala við mig þá verð ég upptekin á fundum ALLA daga. Bless. 08:48 |
Magnús Thorvaldsson, bróðir hans afa, var jarðsunginn í dag við mjög fallega athöfn. Hann var ekki nema 76 ára svo að þetta var nokkuð trist, sérstaklega fyrir barnabörnin hans sem annars stóðu sig vel. Merkilegt fannst mér hvað afi og Helgi (3. bróðirinn) voru bara hressir. Rölti með afa út úr kirkjunni og það var eins og hann hefði setið fallega tónleika. Fússaði yfir því við Rúnu sína hvað hún væri upptekin við að faðma fólk þegar hann vantaði aðstoð við frakkann! Alveg vanir menn. Það var mikið hlegið og gantast í erfidrykkjunni, enda myndarlegt og skemmtilegt fólk í öllum hornum :) 22:56 |
![]() 10:52 |
úff ég er svo mikið beib eftir gærdaginn að ég þarf frekar mikið að labba framhjá speglum. Ég fékk nefninlega slétt hár í gær og er þess vegna alveg eins og J-Lo. Þetta er nú samt skammvinnt (fallegt orð) hössl-look þar sem að minnsta rigning mun koma mér í sömu krullurnar. Ég ætti nú að vera að læra á hlöðunni að pikka upp gæja meðan þetta er. Amma brosir alltaf skringilega til mín af því að henni finnst ég ekki vera Bryndís. Ég tók þ.a.l. upp á því að kynna mig sem týnda tvíbbann hana Elínu sem að mamma og pabbi gáfu sænskum hjónum sem misstu barnið sitt við fæðingu. Ótrúlega ósanngjarnt að þau fái 2 en hin ekkert! Fósturforeldrar hennar sögðu henni alla söguna fyrir tveimur árum og ákvað hún að koma og leita uppruna síns hér. Ég er búin að segja henni að mamma sé í dópinu í Köben og pabbi fastur í smugunni. Kæri mig ekkert um að hún sé að troða sér í mín mál. Svo er líka bara gott að hafa hana hérna hjá ömmu. Hún elín er alveg kostuleg. Gleymir að setja í lás, slökkva á kaffikönnunni.... endalaust vesenið á henni. Vona að hún verði sem lengst hjá okkur, sé hvað hún og amma eru farnar að ná vel saman. Ég óska Sverri og félögum í Funkmaster 2000 til hamingju með afmælið þar sem að í dag eru ákkúrat 4 ár frá því að þeir héldu tónleika á vegamótum sem voru síðan gefnir út. Einu sinni grenjaði ég utan í sverri þangað til hann fékk ógeð á mér og þrykkti einu eintaki í mig :) ég gafst sko ekki upp! og held ég að það sé vel við hæfi að skella því á fóninn í næstu læripásu. Heimalæri. 10:38 |
ákvað að kíkja hver væri með bryndis.blogspot.com og komst þá að því að stúlkan sú er snar í baðhúsinu, kannski ég fari að tala við hana. 23:34 |
23:27 |
Hann Jojo er með gjörning. Verst hvað hann kann ekkert á internetið eða tölvur almennt. Oft sem að hann hefur hringt í mig alveg snar út af hinu og þessu sem virkar ekki. Svo er það hann Gummi. Úfff ég veit ekki hvar ég á að byrja. Einu sinni gat hann ekki gert bjór og regnboga á msn og var kvöldið bara ónýtt :) Strákar! sameinumst í HTML! Koma svo þið getið þetta, HÁ TJÉ EMM ELL! 23:23 |
ég er EKKI lengur með rót og slitið hár!!!! það er svooo fínt. Takk Magnea. Gerðir þetta nú reyndar ekki frítt en ebbi frændi frestar afleiðingum fram til þar næstu mánaðamóta. Þegar ég settist í stólinn hjá henni var einhver snillingur sem að setti Ske á fóninn. I was in paradise sem ég þarf að gjalda fyrir með litlum lestri. Því svo á leiðinni út þá sagði Gummi (aðal klippikrumlan) að Ása Ninna hans (krúsímúsí) væri að vinna í Bossanova. Svo að ég tók að sjálfsögðu sprettinn þangað og knúsaði bumbuna hennar. Á að eiga 29.janúar sem væri ekki ljótt þar sem að Katrín Magnea og Ólafur Axel eiga bæði ammli þá. Hún hefur verið að hanna rosalega flott föt og ætla ég ekkert að segja meira um það þar sem að þetta er leyndó og allt að gerast! alla vega rosalega flottar, peysur, húfur, bolir og fleira. Keep y'all posted on that! Hún og Gummi er rosa happy og búa saman í 101. Þegar ég er búin að þrykkja þetta próf og ritgerð fyrir næstu viku þá ætla ég með gotterí til hennar :) 19:01 |
svei mér þá ég þarf ekki mat næstu dagana! Sæmundur Jón Oddsson skrapp á Nings í kvöld og pikkaði mig upp í leiðinni :) Greyið Védís fékk óverdós af skemmtilegu fólki og góðum mat. TAKK FYRIR MIG TRÚTZZZAR. Við ætlum að reyna að taka einn kaffibolla áður en hún fer út, þar sem að hún er búin að syngja það sem þarf fyrir þessi jól og skellir í London á föstudag. Það verður cointreau allan laugardaginn henni til heiðurs. Það var mjög skondið í kvöld þegar ég kom heim af bókhlöðunni um 7 leytið, þá rauk amma á móti mér og það hlakkaði svooo í henni þegar hún sagði: ,,núna ertu EKKI búin að borða haaaaa!!!" það var eins og hún hefði unnið mig í einhverri keppni, eða hefði gripið mig glóðvolga, nú eða brennandi heita. Anywho! ég feisaði hana big time með nings! múhahahahh ÉG VANN! 00:59 |
Ég er illa skóaður námsmaður með þurrt ljótt hár !!! Ég ætlaði að bíða með fegrunaraðgerðir fram eftir próf en ég er ekki samræðuhæf með þetta hreiður. Svo er árshátið um næstu helgi og mig langar að vera sparibarnið! En köld eru kvennaráð. Þar sem að ég er ekki alveg viss á því hvernig ég tækla euro um þessi mánaðamót (samt bara 25.000 kall!) þá skildi ég gíróinn eftir hjá mömmu, veit samt að hann rykfellur þar. Spurning um að fá sér kaffi í bankanum og spotta út efnaðann mann sem veit ekkert hvað hann er að greiða og lauma sneplinum í búnkann. Ég er soldið séð?! enda er ekki annað hægt þar sem að kleina og kaffi í skólanum kostar 180 kr. og kleinan er pínulítil. Prump. Uppáhaldsjógúrtið mitt er með 150% álagningu, svo námsvænt og lekkert allt saman. 00:39 |
...eru að gera það gott, enda eiga þeir það svo sannarlega skilið þar sem að Life, death, happiness and stuff er MJÖG gott eintak og hlómar að minnsta kosti annan hvern dag heima hjá mér þessa dagana. Ég ætla ekki að segja að þeir spili einfalt kæruleysislegt rokk því það er alltof inn í dag. Amma rokkar við t-rex eins og óð kona væri, andsetin af Arfa-Jóni. ![]() Meira að segja norsararnir eru búnir að fatta þá! (...undir playliste) 19:46 |
I´ve got a WORKING scan in the house og tók mig í gærkvöldi til og skannaði mér og öðrum til ánægju og yndisauka. Annað má segja um sjónvarpið, ég er ekki enn farin að horfa á það... en fer í það 21.des. hugsa ég, finn nefninlega á mér að það verði góður dagur. Af því tilefni býð ég í dag upp á einn af mínum uppáhalds rassalíusum hana GUÐRÚNU enda ekki annað hægt þar sem að Daði deilir henni með dönum þennan veturinn. Djóóók! Ég er búin að vera að taka myndir af þessum verkfræðibrilla síðan 1988!! og held að þetta sé besta mynd í safninu af okkur tveimur. Enjoy. ![]() 19:26 |
Hugsa til þín ótt og títt sérstaklega brosið blítt, það gæti flutt hæstu fjöll glatt sorgmæddu fjöllin öll, en fyrst og fremst það gleður mig að eiga svona krulla eins og þig. Pant eiga æðislega vinkonu! 01:33 |
Mér leiddist svo í kaffinu í dag á hlöðunni að ég hringdi til Londres og átti gott spjall við lögfræðinemann Aldísi Kristínu. Allt á fullu í skólanum og Védís á leiðinni til hennar næsta föstudag. ![]() 01:17 |
Hann Jóhann Snorri er 25 ára í dag og óskar þjóðarbókhlaðan þér til hamingju með afmælið. Indælt að vera hér og virkja heilasellurnar á fallegum sunnudegi. Konan í afgreiðslunni er reyndar aðal bókasafnsrottan; stal dúinu hans edda klippikrumlu og gengur um og skipar fólki að setja vatnsflöskur OFANÍ TÖSKUR! Þetta er eina tjellingin sem að lætur svona hér. Hræðir mig reyndar að ég skuli vita hvað eigi ekki að gera þegar ég sé hver er að vinna á hæðinni minni (3.hæð). Í gær spreðaði mamma í Fridays með Ásdísi + Agnesi og Soffíu + Mörtu. Sem sagt 3 sett af mæðgum og var mikið hlegið og fíflast. Þaðan fór ég afmæli til Jóa sem var það nett að heimför var um tvö leytið. Ef ég hætti síðan að tölvulúðast og held áfram að massarassast, þá ætlum við mamma að sjá Hafið í kvöld, þ.e. ef ég næ henni úr nýja leðursófanum. 16:06 |
Mínir íðilfögru bræður Hlynur og Benedikt kvarta yfir því að ég tali aldrei um þá hér.Benni þú ferð út þegar ég kem í heimsókn. Djííí á ég svo að skjalla þig hér sí og æ. Ok voða lekkert að þú sért með auglýsingu á mig en ég er með tenglagaur hér líka. Update: Hlynur er í Kvennó og spilar fótbolta með KR. Benedikt er í Hagaskóla og spilar Brids með Hildi. 03:18 |
|