bryddarinn


s2000
jæja nú er ekki nema vika í að single 2000 haldi árshátið. Enn sem áður er planið að hittast í Jane Fonda gallanum í ráðhúsinu kl.14 laugardaginn 2.nóv. og mun Ingibjörg Sólrún taka á móti okkur, ÁN GRÍNS! Aníta Ólafsdóttir sprellari með meiru stendur fyrir þessu rugli og guð má vita hvaða vitleysu hún er búin að plana restina af deginum. Fáum ekkert að fara í heimkynni okkar fyrr en sólarhring síðar eða svona næstum því. I´ll keep y'all posted!


!
safngestir athugið, klukkuna vantar korter í tíu, safnið mun springa eftir fimmtán mínútur.
Klukkuna vantar tvær mínútur í tíu, safnið mun springa eftir TVÆR MÍNÚTUR!!!!
10, 9, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.


bíll
Hvar er bíllinn minn?

Mitsubishi Lancer SO 410 hvítur að lit, hvarf af malarstæðinu við Oddagötu
(fyrir neðan Odda) í gær 21.10.2002 milli kl. 13-18.
Ef einhver getur gefið upplýsingar um bílinn eða afdrif hans eftir þennan
tíma, vinsamlegast hafið samband við
Sigríði, smm@hi.is s:5643253 eða Sigurð í gsm:6592300.
kærar þakkir
Sigríður M.

og svo....

Bíllinn sem var stolið á mánudaginn 21.10.2002 SO 410 og lýst var eftir í
gær, fannst fyrir utan bæinn í gærkvöldi, skemmdur og utan vegar.
Þakka öllum sem komu með ábendingar fyrir hjálpina.
Það er kannski rétt að benda fólki á að vera á varðbergi því eitthvað hefur
víst verið um þjófnaði úr bílum á háskólasvæðinu að undanförnu.

Kær kveðja
Sigríður M. Marinósdóttir.
Ps. Úr bílnum var tekin Britax Renessance barnabílstóll. Líklegt er að
hann hafi verið fyrir þjófunum og þeir hent honum út úr bílnum ef að
einhver hefur rekist á svona stól á víðavangi þætti mér vænt um að hann
hefði samband við mig.
Kv Sigríður
smm@hi.is

Ég vissi það! bara rugl að vera á bíl. Það stelur enginn strætó eða stólum frá mér.


lehren sie bitte herein
hæ hæ, á morgun eða eiginlega núna þar sem að það er komið yfir miðnætti, er vika í massarassapróf nr.2 í almennu sálfræðinni. Ég bið ykkur öll um andlegan sem og líkamlegan stuðning. Minnist á mig í bænum yðar. Góða nótt.



Pitt
Komst að því í dag að ég þarf að gefa vonir um Bradinn frá mér. Það er búið að gera alls kyns rannsóknir á makavali fólks og er málið að við endum með fólki sem er í sama fegurðarstaðli og hefur sama bakgrunn og maður sjálfur. Helst úr sama hverfi! sem er náttla bull, eins og ég sé út' í sjoppu að pikka upp gæja, á leiðinni heim í strætó eða í leigubílaröðinni!!! hahahaha ,,hvert er þú að fara... ég líka... en patent viltu lúll?" held ekki. Einnig löðumst við að fólki sem er mikið í kringum okkur eða situr jafnvel nálægt okkur. Algjörir einsteinar þetta fólk, kemur einmitt oft fyrir að ég laðast að mönnum á Hornafirði...
Önnur skemmtileg tilgáta; þegar við erum ,,ástfangin" þá eykst hjartsláttur og þ.a.l. þegar ungir menn og gráafiðrings gaurar keyra á 120 með einhverja vinkonu er verið að fá hjartsláttinn hennar upp og láta hana skynja ,,ástina" í misgripum fyrir hraðaksturs-adrenalinflipp. Frekar lame!


Mömmu stendur til boða að fara fríkeypis til Köben næstu helgi með vinnunni, en neeiiii hún vill vera heima að hygge sig og gera fint í huset. Ef ég væri ekki að fara í póf fös.1. nóv. væri ég farin í hennar stað í sprellið með carlsberg og Guddu. Vel á minnst, hvar er hún Garún mín. Komdu nú hér og kommentaðu trútsinn þinn.


scoop
sú saga gengur að það sem olli 4.000 feta hrapi flugleiðavélarinnar á leið frá florida, hafi verið pöddur sem skriðu inní hreyfla vélarinnar meðan hún var í stoppinu í USA og valdið usla í einhverjum skynjurum. Ég þekki flugstjórann sem var á vélinni, læt ykkur vita um leið og hann kemur með slúðrið. En þetta var víst ekkert grín. Mamma kannast við unga stúlku sem að var í vélinni og hefur fengið martraðir síðan þetta gerðist. Enda líka bara rugl að vera að ferðast. Hver hefur gaman að því?



kuldi og krap
Ef að airwaves hefði ekki verið þennan mánuðinn, þá væri ég búin að taka hann út úr dagatalinu mínu. Afsakið þið sem eigið afmæli og þvíumlíkt, ótrúlega niðurdrepandi þessi októbergaur.
Ég fór til pabba í vinnuna í morgun að prenta út glósur og greip pabba minn glóðvolgan við lestur þessa bloggs. Mér var sérdeilis brugðið og þarf að fara að byrja að hugsa áður en ég skrifa. Eða ekki, hæ pabbi svona er ég þá eftir allt saman. Vona að þú sofir vel :)



milljón
held að þorsteinn j sé að missa sig. Ein spurningin í viltu vinna milljón í kvöld var ,,hvað eru kviðmágar?" Þar sem að ég sat ekki fyrir framan tv-ið gerði ég ráð fyrir að eyrun á mér væru að leika sér. En nei, þetta orð er víst til í orðabók. Ég set stefnuna á alþingi og mun berjast fyrir hönd legmága.


hvers eiga fílar að gjalda
...labband' um í grænum skóg. nú eða grænum flauelisjökkum! Airwaves er alla vega lokið og fer ég sátt á vit lærdóms á ný. The Hives voru aðallinn í gær, algjörir snillingar sem gáfu sig 200% í tónleikana. Söngvarinn er töffari vikunnar, hoppaði, kallaði, James Brownaði eins og hann gat. Þeir buðu meira að segja upp á 3 aukalög. Apparat voru að sjálfsögðu góðir, sem og Blackalicious sem að rifu svarta manninn upp í mér og fleirum. Gus gus mega hins vegar vera heima hjá sér á sýru og vegna þeirra og leiðinlega fólksins sem var eftir í höllinni var beil í bæinn. Almenn ölvun og bruni í gangi þar og var stemmarinn lang mestur á kaffibar.

Held að ég hlakki bara til að fara að lesa almennu sálfræðina á ný, var góð við mig í dag og er búin að vera að laga til og hlusta á ( ) með sigur rós sem er MUST. Eðals kaffi þar á ferð. En nú er það steik í Akraselinu þar sem fólk gerir skrýtna hluti.


Home