bryddarinn


lau
ég er frá mér numin eftir tónleika næturinnar. Ske, Bang Gang og Trabant takk fyrir hér! Það eru ekki til nógu sterk orð yfir gjörning Tabants. Ragnar söngvari gjörsamlega snappaði. Hann tók flottasta dans sem ég hef séð, gott stripp og mikið af hristri bumbu og brjóstum. Afhverju var ég ekki með myndavél ???? Fötum var þrykkt út í sal og skyrtur voru rifnar. Spurning hversu miklu þessir menn muna eftir þegar þeir verða spurðir út í Airwaves 2002....
Védís var að sjálfsögðu lang flottust, enda gefið mál. Hún tók 2 lög ein; sacred things og so alone. Snilldar lög sem allir þekkja og gerðu góðan stemmara. Valdi verslómaður (,,ég elska menn" í wake me up) þreytti frumraun sína á hljómborðinu með bang gang og það líka glimmrandi vel. Líka gaman að sjá Jóa bassa á sviði, hann hatar sko ekki strengina.
Við Gumms kíktum líka á Ampop á Vídalín og Stjörnukisa á Grand Rokk. Ampopið er gott, tóku bæði laugin sem ég þekki, en kisarnir voru tjaaa ekki á minni stjörnu, eða e-ð... En núna þarf ég að skreppa í próf! weeeee, er einhver að nenna því?? en svo í kvöld verður gleðin óbærileg, APPA APPARAAAT. Á fætur og æfið dansinn.



búsi
ég er þunn :) loksins loksins. Enda ekki annað hægt þar sem að það var bannað að vera með tómt glas á motorola kynningunni í gær. Það var meira að segja bannað að ná sér í sjálfur í áfyllingu. Svo var maturinn æði, sem og staðsetningin - kaffi victor. Kunni varla lengur að vera full, mundi það undir lokin og svaf í helmingnum af dressinu og með linsu í öðru auga.

Í gær var það Ske sem að stendur upp úr airwaves. Japanska konan er mætt og er algjört rassgat! Hún tók lögin Julietta I og II, það seinna meira að segja 2x. Ef þið viljið meira um það þá er Gummi maðurinn. Svo eru Ske líka í kvöld í Iðnó, svo drullið ykkur þangað!



kviðmágur
Ónefndur félagi bar þetta upp í annars í mjög svo góðu samtali og vil ég ítreka það hér og nú að þetta er big NO NO. Brundur í maga er e-ð sem heillar stelpur ekkert voðalega mikið. Mátt kömma á disk handa konunni þinni og sjá hversu hress hún verður. Ef þú strákur sem lest þarft að tala um stelpuna sem þið allir vinirnir tókuð síðasta laugardag þá fyndist mér meira lekkert ef þið segðuð legmágar. Nú svo er líka allt í lagi að sleppa því að hamast á sömu gellunni. Respect.


lobsterhás
pabbi minn er eðals pabbi. Hann er svona pabbi pabbanna. Eftir sund rétt fyrir hádegi bauð hann í 2ja klukkustunda lunch á humarhúsinu. Fékk mér spergilsúpu, grænmetis-gráðosta ommelettu og cappuchino. Áttum alveg eðal spjall. Ef einhvern langar að lesa feril hans á sænsku þá er hann hér.

Denna vecka presenteras Hördur Hilmarsson.


rúv
Helvítis rúv að senda mér boðskort, halda þeir að ég sé tóm? Ég fer ekkert að skrá tv-ið sem addi og fríða lánuðu mér! þó að amma sjái um afnotagjöldin í þessu húsi, þá gæti ég tekið upp á því að flytja einn góðan veðurdag og lögheimilið þar af leiðandi líka. Ekki að taka ljóskuna á þetta og vera hoppandi hress yfir því að það sé eitt gjald á hvert heimili. Hugsa fram í tímann hér.


músíka
well börnin góð. Airwaves hefjast á morgun og ég gæti ekki verið sáttari með lífið og tilveruna. Motorola gaur hefst um kl.19. og verður gleðin á airwaves síðan spiluð af fingrum fram. Föstudaginn er það sko pottþétt Iðnó, must að sjá mína bestustu ljá Bang Gang rödd sína. Hún ætlar að syngja sacred things og svo í einu eða tveimur lögum með Lydiu. Svo ku Barði sjálfur ætla að grípa í mækinn! Ske og Trabant eru á sama stað og sama kvöld svo gleði verður í húsi þá.

Barði y Védís en France



EFTIR 2 SÓLARHRINGA OG 45 MÍNÚTUR VERÐ ÉG AÐ DREKKA BJÓR Í BOÐI MOTOROLA !!!! MÚHAHAHAHAHAHAHA



Ef þú ert Íslendingur í útlöndum á leið heim, eða útlendingur sem veist ekki hvað þú átt af þér að gera, komdu þá með svona handa mér og hinar tegundirnar líka fyrst þú ert að þessu á annað borð. Þegar sólin hættir að skína og skammdegisþunglyndið kemur aftur, má skemmta sér konunglega á heimasíðu granovita á spænsku!! hægt að fara á .co.uk en það er ekki nærri því eins gaman.


búss
Óþolandi þegar strætó hossast yfir brattar hraðahindranir, hliðarspikið hristist svo að mér ofbýður.



seventh heaven!!! Afhverju eru allar þessar vörur ekki til á íslandi? og afhverju í andsk.. þarf þetta að kosta svona mikið?


snilldin ein
útgáfutóleikar apparat voru haldnir á 5.hæð í húsi apóteksins í gær og þvílík snilld!!! ef þú hefur ekki hlustað á þá live, þá ÓHEPPIN/N! En hefur tækifæri næsta laugardag í höllinni og helgina þar á eftir á grandrokk þegar þeir hita upp fyrir Stereolab, til að bæta fáfræðina. Endlaus gleði á næsta leiti, læt engin laugardagspróf buga mig.



sun
það er sunnudagur, ég er ekki þunn og að vinna mér inn pjéning. Tómlaust rými af hamingju. Ég fór bílandi í bæinn í nótt með Sigrúnu og Huldu Bó í röðina á Thorvaldsen, en Védís, Sæmi, Andrea, Siggi Árna og Sverrir björguðu mér þaðan. Kíktum á 2 lög á Grand þar sem botnleðja lék fyrir dansi og 30 mín. á Hverfis sem er djöfull í mynd skemmtistaðar. Hugsa að toppurinn hafi verið heimleiðin, þá átti Valur a.k.a. senor frosen margarita heiður af hvarfi hiksta Veddarans, enda respect!
Í nat eru það svo útgáfutónleikar apparat.


Home