bryddarinn


HAHAHAHAHAHAH ég kallaði Hauk Inga, Andra Fannar!!!!!!!!!!!!! ja hérna hér


í rénum
ég á ekki orð yfir þeim Íslendingum sem voru að rölta niðrí Laugardal lóded af bjór! allt í lagi að fá sér einn eftir leik, en þessi verslunarmannahelgarstemmari á ekki heima í miðjum 104 á óbreyttum laugardegi kl.14. Ef að þessir drasl samlandar mínir væru í skotlandi væri nú lagi að fá sér 1-2 og ekki reyna að koma með þau rök að skotarnir drekki jafn mikið í sínu landi. Þarf ég aftur á minnast á ófrýnileika þeirra? Þei hev öglí vimin!

Ég ætla ekki að þykjast hafa mikið vit á fótbolta en þetta var drasl. enda var helst sungið ,,við viljum atla í kr" við guantanamera lagið. Védís mætti og söng ásamt nokkrum hnökkum og var MEST hress! Það skemmtilegasta við þetta voru að sjálfsögðu lúbörðu skotarnir og sekkjapípurnar. Þeir sungu einmitt ,,who ate all the pies..." voru e-ð að kvarta yfir vakstarlagi eiðs smára, hann sem er svo sætur. Hann Andri Fannar er nú líka voða krútt, hann er sálfræðimaður á 1.ári og á eftir að massa það í boltanum þó að hann hafi nú ekki gert mikið í dag. Vinir hans pabba; Kenny Moyes og e-ð Moyes pabbi hans lentu í Kef klukkustund fyrir leik sem mér finnst massa nett. Ég ætla svo að taka þennan pakka þegar ég er orðin eldri og með þykkt veski. Enda ætlum við Aldís að eiga saman íbúð í Londres ef að hún mun ekki búa þar.



weeeeeeeeeee
Sei sei, ég er að massa þetta hérna á hlöðunni, á laugardagi og klukkan ekki orðin 10! vaknaði kl.8 í morgun og það er stemmari. Sérstaklega þar sem að pabbi var að hringja í mig og bjóða mér á leikinn á eftir!!! vei vei vei. Hann var svo sætur og nýlentur í röddinni. Voða gott að vera búin að fá hann aftur þó það kalli á bílleysi á mínum bæ...

Ég, Vedder og Sæmi horfðum á Memento á Víðimelnum í gær og þið sem eruð ekki búin að sjá hana, NÚNA takk. Það var kominn meira en mánuður síðan ég horfði á hreyfimynd síðast og var skemmtanin því konungleg. Hann Jói á Toppmyndum Hofsvallagötu sagði mér það að gaurinn sem gerði myndina hefði látið bauk ganga á sýningu á einhverri annarri mynd sinni og þannig fjármagnað Memento. Meira veit ég ekki.


glens í boði Tinnu Margrétar
A guy sitting at the bar at Pearson noticed a beautiful woman sitting next
to him. He thought to himself, "Wow, she's so gorgeous she must be a flight
attendant, but which airline does she work for?" Hoping to pick her up, he
leaned towards her and said, "Love to fly and it shows?"

She gave him a blank stare and he immediately thought to himself, oh shit,
she doesn't work for Delta. A few seconds later, another slogan popped into
his head. He leaned towards her again, "Something special in the air?" She
gave him the same confused look. He mentally kicked himself, and scratched
American Airlines off the list.

Well, maybe it's United so he tried, "I would really love to fly your
friendly skies". This time the woman barked back at him, "Man, what the
fuck do you want?" The man smiled, "Aahhh, Icelandair!"


jameson
tja, góður stemmari, allir í skýjum yfir skotum enda ekki annað hægt þar sem að við sem höldum okkur í æðri enda borgarinnar þverfótum ekki fyrir þeim. Þeir voru meira að segja á gervibrúnkustofu í bænum morgun! og það var óslitin lína af þeim upp suðurgötuna og út á hlöðu. þeir voru vappandi um allt í kringum skólann enda flottasta hótel bæjarins á sama kanti. Krissa greyið (álftó og HÍ félagi) er að vinna á Brennslunni og er búin að fá sig fullsadda af kappdrykkju og hlandi í öllum hornum eftir þessa bastarða. Þess má einnig geta að Krissa er í landsliðinu í kaffigerð!!! ekki amalegt það að þekkja eina svona. Kim kærastinn hennar er í landsliðinu í veggtennis held ég. Þau eru alla vega mikið að keppa og svoleiðis.
Nú er sem sagt góssentíð hjá óheppna kvenfólkinu sem að æsist upp við skoska hreiminn, fretið, öskrin, bjórsletturnar og svitablettina. Alveg eru þær að láta setja í sig þessa helgina. Þetta er einmitt ein af ástæðunum fyrir því að ég ætla að halda mig að mestu innandyra. Nú og líka sú að ég ætla að læra og spara. Enda verður næsta helgi mega busy þar sem að ég þarf að þreyta próf, fara á alls kyns konserta, fara á gsm kynningu og jafn vel eitt stykki djamm.



navidad
Jólin hafa elt mig í dag. Ég kíkti í heimsókn til Óla Axels og fékk hláturskast þegar ég kom inn. Það var búið að hengja voða lekkert jólaskraut upp og dekka borðastofuna eins og brúðkaupi og jólum hefði verið slegið saman í eitt. Að sjálfsögðu gafst skýring og er málið að Gestgjafinn kemur í heimsókn í vikunni vegna jólablaðsins. Mér þykir fólk nú heldur vera að hlaupa upp og niður á sig. En þetta versnaði. Síðan fór ég aldrei þessu vant í IKEA og þegar ég var að borga nýju hillusamstæðuna (sem mér tókst að setja vitlaust saman og eyðileggja 2 hillur) þá sá ég 3 stór jólatré með rauðum kúlum og einhverjar heillakveðjur. Mjög sennilegt að þetta sjúka fólk verði farið að auglýsa jólin 2003 í lok desember 2002.


HLAUPUM Í GÖNUR!!!!!


z
Úffff ég er þreytt, búin að ferðast mikið undanfarið. Svooo margt sem mér liggur á hjarta en, góða nótt. Jú, eitt, takk Gumms fyrir komment fídus og takk stelpur fyrir að kommenta svona. Voða gaman að þessu. Ég skal massa mig upp í að hrauna meira á ykkur :)



bull
Það eru 300 og e-ð manns í sálfræði á 1.ári og þurfa að skila verkefni í kvöld/fyrramálið m.a. úr PsychINFO (gagnagrunnur með sálfræðigreinum) sem er einungis hægt að fara í á háskólasvæðinu og bara 10 í einu!! Ég var að reyna að útskýra þetta fyrir bókasafnsgrýlunni en þá fór hún að tala um tímann sem við hefðu haft. HVAÐA TÍMA? Jú, ég hefði geta sleppt því að læra fyrir síðasta hlutapróf eða gert eins og hún átt heima á bókasafni og safnað hári á tánnum.



Sjáið hvað krulli er spenntur að fá mig!!!


borders & shading
Word er orðið voðalega tæknilegt! alls konar fídusar sem voru sko ekki þegar ég var í 7.ÞT í tölvutímum hjá Þórunni Trausta. En þessir gömlu góðu eins og print preview eru ennþá þarna og hlýja mér um hjartarætur. Vinnulag í sálfræðinámi sem er svona námstæknikúrs sem hefur ekki krafist neins af mér hingað til heimtar núna að ég skili endlausu dóti á morgun. Af því leiðir að ég þarf að föndra langt fram á nótt og mæta svo með þetta kl.8:10! Hjálp! Það er bókstaflega bannað að sofa meira en 5 tíma á nóttu þessa dagana. En á morgun ætla ég ÚT Á LAND!!!!!!!!! Fer í dinner og dúllerí til Védísar í Reykjanesbæ. Hlakka ekkert smá til. Hún var að hringja í mig og vildi fá nákvæma tímasetningu til að geta undirbúið.... held að það sé best að byrja sveltið núna :) Ég ætla að gista hjá henni og fara í sight seeing á miðvikudaginn!




Móðir mín falleg og fín, en með hreingerningaráráttu á háu stigi. Ef einhver kann ráð við því, vinsamlegast sendið mail á boddy@simnet.is


ég er að horfa á....
SNJÓ!!! Helvítis sjónvarp. Ég er þreytt og langar að liggja í mjög svo kósí sófanum mínum og glápa á e-ð annað en snjó. Kannski ég ráði mann í þetta. Annars er þetta nú frekar ljótur dagur og má klára sig fljótlega.


Home