| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
16:22 |
Just want to congratulate Mailyn, for today she just closed escrow on a beautiful house and is now officially a homeowner. Yeeee haw Mailyn I am soooooooooooo happy and proud of you!!!!!!!!!!!!!! Did someone say party!!!!!?????? Stay tuned for future house-warming party information to be released, Patty. Ber algjörlega við minnisleysi hér, fór samt beint í innsta vinahring og fæ endalausar ,,flipp" kveðjur frá þessum kanaskinkum. 15:59 |
Ég ætla að massa þetta! Er ekki í sérstakri stemmningu, en hún mun ryðja sér til rúms þegar líður á daginn. Búin að taka baðhúsið og átvr á kantinn og veit ekkert hvað ég af mér að gera núna. Neita að læra og ætla að snúa öllu upp í sprell. Prófið í gær gekk svona la la og var hið besta spark í rassinn. Fór síðan á Maus á Grand Rokk og teigaði 2 miði þannig að ég á hellings inni:):):) 14:52 |
22:37 |
3 klst í próf og ég nenni ekki að læra meira! Just want to blame it on the sunshine! Ég er heima á melnum og það er voða gott. Þekki mig til í skápunum og svona... Bræður mínir eru alltaf jafn yndislegir og vil ég vekja athygli á ástkærum bróður mínum að nafni Hlynur sem er hér til vinstri. 14:11 |
...er ljóti prófalíus!!! nei nei hann er voða sætur! 80 krúttlegir krossar sem ég ætla að trútzast í, í 2 klst. Gæti verið gott að taka með sér blýant, strokleður og næringu. Mér leið eins og í 8 ára bekk þegar kennarinn sagði þetta. Einnig benti hann á ágæti eyrnapinna! sem að fór alveg með mannskapinn þar sem frikki blessaður átti að sjálfsögðu við eyrnatappa. Friðrik er frábær kennari og minna fyrirlestrar hans á gott stand-up. Tótla tútta er sko ekkert tetur! hún er með link á sundskýlustrákana hjá sér. Þetta er svooo fyndið! Þetta eru sennilega allt hommar, allavega svona týpur sem að láta troða öllu alls staðar. Svo er búið að peista þá inn í alls konar draumkennd sínerí. Kastalinn er núna mitt uppáhalds. 10:11 |
í dag las ég. úfff alveg að snappa á því að vera lokuð inni. Eftifarandi lögmál setti ég fram í dag: 1 .Aldrei að læra eftir kvöldmat, það er mannskemmandi. 2. Aldrei að eyða meira en 7 klst. á hlöðunni, meira orsakar langvarandi hita og hausverk. 3. Læra meira fyrir hvern tíma, kemur sér vel þegar þreyta skal próf. 22:12 |
![]() Svo ætlar Védís til London eftir Airwaves og kemur heim í desember til að ná flugi til Flórída! halló hér! 00:02 |
Þeir sem eiga sándtrakið úr The Piano vinsamlegast setjið það á fóninn, veljið the scent of love (nr.9), hækkið, kveikið á kertum, slökkvið ljósin og leggist undir sæng. 01:09 |
úffff, er að reyna að læra, e-ð annars hugar... held að þetta sé skortur á gini í blóðinu. Þórir bróðir mömmu kom áðan og kynnti mig og ömmu fyrir nýju kærustunni og eiga þau von á barni eftir 5 mánuði! sei sei! hún amma er sko ekkert að hætta að verða amma. Bara endalaust. Nýja konan heitir Dísa Lind held ég, 33ja og vinnur hjá úrval útsýn. Mikið kvonfang! Ég skellti mér með Kötu í bæinn í gær og vorum við allan tímann á Hverfis. Sprelluðum með Bjössa sem var þarna ásamt Dabba nýbúa og svo kom stór hluti s2000 á svæðið við mikinn fögnuð. M.a. Bylgja sem að kynnti mig fyrir Bjarna kærastanum sínum. Hann heldur (nú eða þá veit) að ég sé sjúk í haus þar sem að ég talaði tungum á tímabili sökum of stórs skammts af koffíni. Ég var ekkert að segja þeim hjúum að ég væri edrú... Andrúmsloftið á Hverfis hefur sjaldan verið sveittara, alltalltof mikið af fólki allir að hella á alla, shakira-britney-madonna-bleahhhh. Æi bara ekki alveg að gera sig þessi staður. Samt er nú úrvalið af stöðum ekki kræsilegt. Það þarf að vekja upp gömlu góðu partýin þar sem allir drukku og dönsuðu eins og hestar áður en farið var í bæinn. Stemmarinn er of dauður fyrir bæinn! Það er eyrnamergurinn! Það þarf að taka keistið og mongóast meira, ekki þetta pjatt og fínerí stelpur, komum í víking! 19:18 |
Afhverju að breyta sölunum í Háskólabíó úr 1,2,3,4 og 5, í stóri salur,1,2,3 og 4??? Þetta er bara drasl hagræðing! 10:25 |
|