bryddarinn


extranjero
Núna eru þær Hildur og Begga að njóta lífsins í Madrid! Það var ég einmitt að gera fyrir einu ári síðan. Ég er nú alveg sátt við stétt og stöðu í dag, en mikið rosalega hlakka ég til að flytja til Spánar. Kannski verður það eftir 10 ár, who knows. Svo er Doddi ás að tromma frá sér allt vit í Miami og rakst ég á bloggið hans hjá Tótlu. Doddi, næst þegar þú kemur heim þá kemuru í bús með 6.A! Svörtu mennirnir verða bara að sjá af þér eina kvöldstund.


ormslev
Ég samhryggist ykkur framarar! Þar sem að ég var nú einu sinni í handboltanum í fram, sótti fótboltanámskeið þar og var í skóla við hliðina, en hef varla komið uppí árbæ, þá hélt ég alveg með ykkur.
Þess má einni geta að Owen var með þrennu á móti Manchester City í dag!!! Alveg ástæða fyrir bjór... seinna. Spurning hvort að Owen eigi konu? get alveg notað peningana sem hann fær fyrir þessi mörk.


tim the tool man boddý
ikea borðið góða komið á sinn stað og ekkert smá vesen að koma því saman! skil ekki afhverju ég fékk bara 8 í öllu handmenntadóti í álftó. Sama hvort það var smíði, saumi, eldi eða máli, alltaf lægstu einkunnirnar. Þetta var í gömlu góðu dagan þegar allt undir 8 var drasl. Fór svo í MR og fékk 2 á fyrsta stærðfræðiprófinu. Mjög spes þar sem að stæ var mitt fag. En ég hló bara!



:)
Ja sei sei, ég er flutt og adslið working fine and dandy. Því vil ég þakka Gumma Jóh, pabba og mér að sjálfsögðu:) Herbergið mitt er frekar asnalegt, því að ég á eftir að kaupa borð og hillur,stytta gardínur, ná í sjónvarpið sem Fríða ætlar að lána mér og fleira skemmtilegt. Núna munu gullmolar fara að streyma hér inn sem og myndir af íðilfögru fólki!



weeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee
Mér til mikillar ánægju og yndisauka er búið að fresta fyrirhugaðri vísindaferð í Flögu til 11.október! Þær myrku raddir voru farnar að óma, um að ég ætlaði að hrynja undan drykkjustaðli og neita fríu búsi og þar með sleppa minni fyrstu vísindaferð næstkomandi föstudag. En sei sei! Óðinn, Þór, Iðunn og eplið horfa niður á mig og færðu sprellið!!! Tók nefninlega þá ákvörðun að hafa 2 búslausar helgar í röð! ég veit! þetta er svakalegt. Alveg nýr heimur :)


ARRRRRRG!!! Bókhlaðan er svo séð! Ekki hægt að downlouda msn hérna!


weird
Ég á ekki bara kexruglaða vini, heldur er þetta líka í blóðinu. Ég var að læra hjá ömmu í gær og hún var með kvensuteiti niðri, sem fór ekkert á milli mála þegar mamma mín mætti (ég var staðsett á annarri hæð) því hún er nokkuð iðin við að tala og hlæja hátt. Anywho! systir hennar ömmu, hún Bubba, gat hlegið endalaust að því að tælenskar konur færu niður á tjörn og SNÉRU ENDUR ÚR HÁLSLIÐ og tækju með sér heim að elda. Núehh og svo þarf ekki að búa til stuffing þar sem að þær eru fullar af brauði! Mér fannst þetta að sjálfsögðu fyndið þar sem ég vissi ekki af þessu, en greyið Guðbjörg frænka, hún býr í USA og og varð hálf óglatt yfir kaldhæðninni sem sveif yfir rjómakökunum.

Annars er það að frétta af Karfavoginum að ofninn er kominn úr herberginu og það verður reynt að þrífa og ganga frá í kvöld svo að hægt sé að flytte á morgun. Húsnúmerið er 24 og póstnúmer 104 fyrir jólakort og önnur heillaskeyti.



HALLAHHHHHHHH
Já ég veit! Ég er löt! Það stendur hérna fyrir neðan Á NÆSTU DÖGUM! það þýðir ekki á morgun! En ég fæ reyndar tölvuna á morgun... :) Núehh tónleikar, skóli og ótímabært skammdegisþunglyndi er það sem hefur drifið á daga mína að undanförnu. Almennur hressingur og bjór á Leaves (Naza) og Trabant (Grand Rokk) og langt samtal til London í gær er að draga úr væli og öðru rugli. Aldís tók svo mikla sálfræði í MH að öll vandamál verða bara að skemmtilegum verkefnum eftir smá tjatt við hana. Hún er svo mikið trútzzz, farin að punkta niður veitingastaði og seværdighedder fyrir næstu heimsókn mína!


Home