| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
Ég vil þakka Quarashi fyrir snilldar tónleika. Langt síðan ég hef dansað svona mikið. Rottweiler á svo langt í land með að verða e-ð, þeirra eru svo mikið drasl við hliðina á Q að ég hálf vorkenni þeim. TAKK FYRIR MIG QUARASHI! Það var ölvun á HÍ fólki á Astró í gær sem endaði með ágætis helun á Hverfisbarnum sem ég nenni bara ekki að hafa fleiri orð um. Fínerís sull það. Ég veit að fólki mun blöskra núna, en ég verð bara að copy peista af msn til að útskýra afhverju ég er skrýtin í höfðinu: ,,hæbb, hefur þig verið að dreyma blauta drauma um mig undanfarið? Það nefnilega lekur píkusafi út um geisladrifið á tölvunni minni og mig grunaði að hann gæti verið þinn". Held að bjórinn í Köben sé að fara illa með suma... 16:59 |
Ég veit að ég er massa löt við skriftir, en það er sökum tæknilegra örðugleika sem lagast þegar ég er búin að kaupa mér tölvu sem verður alveg bráðum :) Svo er ég að syrgja hana Aldísi þar sem að hún er farin heim til London :( Hún kemur ekkert heim um jólin, þannig að það er spurning um að taka Londres yfir eða eftir áramótin. Verð því miður að hlaupa núna, matarboð hjá Veddaranum og svo Quarashi!!!! 18:00 |
Ég og Védís ætlum að skella okkur á Quarashi á fimmtudaginn í boði Búnaðarbankans :) og svo var Europay að taka upp á því að gefa mér miða fyrir 4 á xXx á morgun. Samhliða þessu er stúdentavika og aldeilis nóg að gerast. Núehh svo er gott að læra stundum :) Ég fór til ömmu í gær í smá aðlögun og verð að segja að þar er snilld. Er með sér læriherbergi sem veitir gott næði. Svo er hún amma soddan snilli. Í ísskápnum er ekki bara að finna undanrennu, heldur líka SOYAMJÓLK! Einnig 10% sýrðan rjóma, 17% ost og fleira fitulítið dót. En svo brá mér heldur betur í brún þegar ég mætti SPELTU BRAUÐI í eldhúsinu! Held að þetta sé ættgengt...Inn á baði eru 3 gerðir af "Victoriu Secret body lotion" (ég á bara 2) sem eru þau bestu í heimi, enda er amma mín það ameríkusjúk að það eru amerískar innstungur í öllu húsinu. Var víst voða móðins hérna í den. 11:15 |
Mér finnst merkilegt hvað það er miklu skemmtilegra að hlusta á karlmenn halda ræður og fyrirlestra en konur. Þær eru ekkert sniðugar, á meðan kallarnir sprella mikið. Veit ekki hvort að þetta eigi orsök sína í því að konur þurfa að bera börnin, hafa því meiri ábyrgðatilfinningu... eða séu bara leiðinlegar!? Hugsa að eina konan sem mig langi að hlusta á, á sviði, sé Helga Braga. Enda er hún snillingur. 19:47 |
Ég var í svo mikilli sæluvímu eftir að hafa sett þessa fallegu mynd inn (með smá aðstoð:) ) að mig dreymdi á laugardagsnóttina að ég ætti ótrúlega flotta digital myndavél. Bráðum þarf ég barar að hætta í sálfræðinni og skella mér í tölvunarfræði!!! Nú eða aldrei... 19:36 |
|