| bryddarinn |
|
Ég er að borða:
![]() Sendu mér póst fotos fotos 2 sys & brós hlynur & co benni bró trúts fallegustu menn í heimi hér stefán ingi hressleikinn eddie vedder heiðdis halla kristin maria dorrit x-pre freyjur tótla ásdís tótisif hilly billy berglind ýr fallega fólkið í sydney daglegt pan ít ferðir vaka deiglan hresst funkmaster gumms gumms herdisogulf holmsteinn eldri færslur |
Maturinn á Apótekinu var þegar á heildina er litið mjög góður. Það vantar samt grænmeti á diskana. Kjöt, kartafla og eitt laufblað! Ég stal reyndar grænmetinu hennar Berglindar þannig að þetta bjargaðist. Ég tók pólinn á nauta carpaggio (held rétt skrifað), túnfisk sem var brilliant og ljúffengt spænskt hvítvín. Eftir það skutlaði Siggi mér, Borghildi og Fjólu upp í Glæsibæ þar sem að aðafundur starfsmannafélagsins fór fram. Almenn ölvun og gauragangur eins og gengur og gerist á símafylleríum. Ótrúlega spastískt lið. Í bænum lét ég draga mig inn á Naza sem er súri hluti kekkjótta rjómans í kúkabrúnu g-mjólkinni. ooooooog greiddi mig inn! takk Kiddi þú ert bara drasl frændi! En Fjóla þurfti að kaupa mig inn með því skilyrði að hún myndi bjóða mér í glas í staðinn. Anyways, gott að hafa prófað þetta, því þá veit ég hvað á alls ekki að gera. Núehhh Fjóla og Benni Rúnars héldu uppi fjörinu en mér og Stebba Gunn tókst að draga hin þau út með herkjum. Kíktum aðeins á Vegamót en bærinn var dauður þannig að það var pizza og bjór uppá Týsgötu hjá Benna. Svo vaknaði fólk í djammdressinu kl.8 í morgun, almennt hresst bara! 15:14 |
Ef einhver heldur að hann/hún/það sé duglegt, then think again! ég er búin að sofa í 2 klst.og er bara hress að vinna! Belle & Sebastian og kaffi latte ala Bodd Bodd sjá til þess að þessi dagur sé eins gefandi og raun ber vitni (was!) Mási (Egill Már) var e-ð að slæða inn Baby´s got a temper (Prodigy) sem er svoooo óvinsælt. En hann er búinn að lofa þynnkuvænum lögum það sem eftir er :) Hálf skömmustulegt að segja frá því að ég á ekki einn einasta disk með B&S. Samt ertu ennþá vinur minn Gummi! alveg aðdáunarverð frammistaða. Ég lofa að það verður breyting á þessu, er orðin e-ð svo kærulaus á peninga. Sem ég by the way á ekki þar sem að ég snappaði í gær og keypti mér flottustu skó í heiminum í KRON (á Laugaveginum að sjálfsögðu). Án gríns þá held ég að hver einasta manneskja í bænum hafi öfundað mig en ekki uppúr skónum þó því þá læt ég aldrei frá mér. Mamma þú færð 3 rokkprik fyrir að hafa valið þá. Vona að þú skiljir þann heiður. Ætla að láta Benna brós taka mynd af þeim svo þið getið öll séð. 11:04 |
Ég var að vinna miða á Quarashi, liggaliggalái! spurning um að fara sjálf eða gefa brósum sætum?? veit bara ekki hvernig miða um ræðir, þótt róðurinn þyngist og bumban með. Er ekki alveg að nenna stæðispakkanum með hinum skoppurunum. 10:47 |
Leaves og ný úlpa í húsi hér! Best að sitja bara í úlpunni með laufin í eyrunum og faðma sálfræðibókina. Er föst í antatómíukafla um heilan og er að springa. The chapter that never ended!!!!! Búin með 30 bls og á þá ekki nema ca.850 bls. eftir fyrir jólapróf. Mjög skemmtilegt en massi. Orð eins og hypothalamus liggja ekkert alltof vel fyrir mér... Var annars í tölfræði, fínt fag svo sem, en mér finnst eins og það sé verið að flækja mjög einföld hugtök eins og breytur, tilgáta og úrvinnsla. Á sennilega eftir að flækjast ennþá meira... Jæja, nú er það 101 Rvk aftur, ætla að fá mér skó :) og éta svo gömlu skóna í matinn það sem eftir er af þessum mánuði. Ætla að vera rosa pæja þar sem að stefnan er sett á Apótekið með símafólki í kvöld og kannski e-ð sprell eftir það. 16:05 |
Hjálp! Vonandi misstu sem flestir af sorglegasta þætti þessa árs á Skjá einum í kvöld. Ég hélt að Temtation Island væri það súrasta, en ennþá súrari drulla hefur litið dagsins ljós! Guð hjálpi þessum skonsum (get ekki kallað þær konur) sem að fóru í þessa vitleysu og Guð geri ennþá betur fyrir þær sem að fóru actually AÐ GRENJA AF ÞVÍ AÐ ÞÆR KOMUST EKKI Í FINAL 15!!!! Sjálfumglaðar druslxx sem að trúðu því ekki að þær hefðu ekki verið valdar og voru að lýsa því yfir að hann gæti vel orðið faðir barna þeirra eftir 10 mín. samtal við hann. Held að ég þurfi ekki að segja meira, nema kannski; horfið á þetta og farið ALDREI til Bandaríkjanna. Védís gaf mér The Very Best of Dionne Warwick í skólagjöf :o) walk on by, I´ll never fall in love again, you´ll never get to heaven, message to michael (snilld!) og öll hin. Takk Vörin mín! 23:37 |
Þvílík snilld er það að vera í skóla! fátækt jú, en að geta ráðið hvenær vinnutíminn er, er brill. Er í 4 fögum fyrir utan blessaða spænskuna sem ég er búin að skrá mig í og mér finnst ég aldrei þurfa að fara í tíma. Get bara farið í sund og lesið til skiptis eins og mér hentar. Reyndar er engin reynsla komin á þetta þar sem að þetta er dagur 2 og ég á eftir að fara í eitt fagið sem er það erfiðasta. Annars er það að segja af síðustu helgi, að Múm gerðu aldeilis góða hluti í Þjóðleikhúsinu. Þegar þau tóku lagið Green Gras Of Tunnel fékk ég svo mikla gæsahúð að það var óþægilegt. Eftir það var tekið gott spjall á Hverfis og svo stutt djamm á Vegamótum. Rigning og enginn stemmari gerðu það að verkum að heimför var fyrir kl.03 sem er í fyrsta skipti í MJÖG langan tíma. Sem var mjög gott þar sem undirbúningur fyrir HÍ var í hávegum hafður á sunnudeginum. Bless og takk 14:37 |
Háskólinn er hafinn og ballið byrjað. Það er smá stress í gangi, skrá sig í umræðutíma og dæmatíma og láta þetta allt saman stemma og passa...svo er búið að fresta flutningum um alla vega 1 viku þar sem amma vill skipta um ofn og farin að tala um parketlagningar. E-ð sem ég ætla ekki að skipta mér af! To be continued... 17:33 |
|