bryddarinn


BDB
Ja hérna hér! Haldið þið ekki að Badly Drawn Boy sé að spila í Manchester 29.nóvember og að pabbi minn sé einmitt með ferð þangað þá helgi. Hann er til í að setja saman hagstæðan pakka fyrir fátæka manninn ef að fólk finnst í geimið. Svo ef að þú hefur áhuga, sendu mér línu á bryndish80@hotmail.com.

Gleðin og tónlistin heldur áfram þar sem að MÚM eru í kvöld. Hæ, hó, jibbí jei! Védís hringdi í mig í gærkvöldi með tárin í augunum (næstum því alla vega) og óskaði eftir að koma með mér og Silju og að sjálfsögðu var því reddað med det samme í morgun.

Núna er það kolaportið þar sem Fríða og fleiri eru að selja einhvern dýrindis varning og svo eintóm gleði bara.


Hamlaus gleði
Í gær var það þunnt kaffi á Sólon með Kötu og Ástu Beret en stakk þær af á miðnætti og skellti mér í rónastemmarann á Grand Rokk með Gumma Jóh og Togga. Þar var nokkur bið eftir Apparat en þolinmæðin borgaði sig því tónleikarnir voru mjög góðir. Fólk var almennt dópað, drukkið og duglegt í slamminu en fallega edrú fólkið barði það af sér. Björk var helvíti nett og hafði enga hugmynd um hvaða pláhentu hún hafði skyndilega lent á. Vona að blessunin hafi ratað heim.
Takk fyrir mig Apparat, plötunnar er beðið með mikilli eftirvæntingu!



Múm
Það er miðar í hönd hér!!!!!!! Silja ætlar að skella sér með mér og er tilhlökkunin orðin mikil. Fór áðan í 12 tóna og þar sátu Múm á gólfinu og spiluðu og buðu upp á rautt og hvítt. Góður gjörningur það.... 2.500 krónur er svo sem ásættanlegt, en Leaves eiga heiður skilið fyrir 500 kall í Iðnó í sumar.
Þess má einnig geta að Apparat Organ Quartet spreða í 500 kall á Grand rokk í kvöld!


Nokia
Ágætis hittingur hjá Nokia í gær. Travis hljómaði yfir snilldarmat, en síðan tók við hljómsveit dauðans, Spútnik! never again thank you! Endalaus mjöður var á kantinum sem orsakaði mjög svo óvelkomna bjórvömb þrátt fyrir fá glös . Röng leið að sléttum maga. BLEAHHHHHHHHHHH. Hef ekkert úhald í bjórdrykkju lengur og dreif mig bara heim fyrir miðnætti til að vera fersk í laugina í morgun:)




ilo
Lagið Artifica Ingredience með Ilo (sem er víst íslenskt band) er að gera góða hluti í eyrum mínum :)


men...
Afhverju taka karlmenn ekki eftir því þegar konur gera stórvægilegar breytingar á útliti sínu? krullað og ljóst verður dökkt og slétt og míns eigins bræður tóku ekki einu sinni eftir því. Ég er að hugsa um að lita það bleikt og sjá hvort menn fara að opna augun. Þetta segir mikið um stráka, ónákvæmnir slugsar upp til hópa! Pabbi hefur meira að segja spurt mig HVAÐ sé öðruvísi þegar ég er með rennisléttan haus. Þið karlmenn verðið að átta ykkur á því að við þurfum hrós. Auðvitað erum við að þessu fyrir OKKUR en það er ekkert verra að ykkur líki það.

En talandi um pabba, þá er viðtal við hann í Fréttablaðinu, þar sem hann segir frá því að hann hafi fórnað atvinnumennskunni hjá AIK fyrir mig :) þú ert flottur pabbi.


mála part II
Jæja, ég og Védís erum ekki ennþá byrjaðar að hamast með málningarrúllunum. Það var ennþá pensl og spasl í gær og mér til mikillar ánægju og yndisauka ætlar mamma að reyna að klára dæmið í kvöld á meðan ég sötra bjór í boði Nokia :)
Í gær voru Turin Brakes blastaðir í Voginum og var Vörin að sjálfsögðu sátt og amma hélt áfram að draga fram kökur, salöt og fínerís fínerí. Þarf að ræða við hana áður en ég flyt inn, nenni ekki á fitubollunámskeið hjá Gauja litla.
Held að það sé málningargen í Heiðargils famelíunni þar sem að ég var ekki fyrr komin heim að Védís hringdi og spurði hvort hún MÆTTI hjálpa mér! NEI FARÐU! eða ekki. Síðast þegar ég málaði á Reynimelnum eyddi Aldís heillri helgi með mér í svona stúss. Verð að gera glaðning handa þeim....



DAUÐINN
Ég viðurkenni það hér með að ég er háð internetinu. Þessi dagur er búinn að vera helvíti án þess og uppáhaldið mitt í ÖLLUM heiminum er Cantat3. Ég eyddi reyndar öllum morgninum á Mojo og er komin með brúnt og slétt hár! sem krullast þegar ég fer útí rigninguna á eftir... En eins og er fíla ég mig eins og J-lo :)
Ég og Fédd blöstuðum Coldplay í Karfavoginum í gær og teipuðum og spösluðum eins og brjálæðingar. Ætla síðan að plata mútt krútt með mér í málið eftir E.R. sem hún er bókstaflega að deyja úr spenningi yfir, þrátt fyrir að Georg Klunni sé ekki lengur í prógramminu.



ves
Fór í hádeginu í dag að kaupa málningu og skoða húsgögn með múttu. Hún ætlar að kaupa kommóðu handa mér sem ég er ekki að sjá gerast því ég get engan veginn valið. En hins vega snappaði ég í IKEA, langar í alls konar drasl þar. Nú á ég bara eftir að finna drasl föt (sem ég á sko ekki!), pizzu og sjálfboðaliðana mína og sletta svo á veggina beinhvítum lit. Fríða ætlar að lána mér sjónvarp og mig langar svo að kaupa mér nýjar bókahillur, rúmteppi, gardínur, borð, bíl og hús.

Fyrir þá sem ekki vita, getur mamma mín verið mjög skrýtin. Hún kommenteraði 4 x á leiðinni í Slippinn í Skútuvoginum, um hvað Íslendingar væru nú ljótir og að allt þetta tal um að við værum sérstaklega falleg þjóð væri hin mesta vitleysa. Henni fannst fólk almennt vera drasl sem hún sá á götunum. Skil ekki hvað gerðist.


vei
Ég er komin í einhverja mailgrúppu hjá honum James Collis stórfélaga mínum: Hope you all had a great weekend, and only four days left!!! Remember - PIMP SQUAD CHAMPIONS!!!!!!!!
"You will never be forgotten when you make an impression in life" -Big Game
The TRUE SAGE.
Ég ekki skilja og ekki vinsælt.



lunes
Ekkert varð um bíóferð í gær skökum anna hjá Söru og því kíkti ég á þynnkuheimilið í Álftamýrinni. Þar voru Kata, Aníta og Ásta að fylla í eyður mínar frá nóttinni áður, enda var vel tekið á því. Hlógum saman yfir Jay & Silent Bob strike back. Fínerís sunnudagssýra.
Allt so far so good í dag. Tók kaffi og kjaft á Kaupfélaginu með Veddaranum í hádeginu og hún vill endilega hjálpa mér á morgun að mála mi nuevo habitación en la casa de mi abuela, sem er mjög gott. Fríða vill líka hjálpa sem og mamma svo að ég stefni á skjótan flutning. Ætti kannski að vera með innflutningspartý! Hvað ætli frú Fífí blessunin segi við því...



Time out
Var að kíkja á junkmailið og þar var eftirfarandi e-mail:
Hello Bryndis how are you? I am James, I met you in Zaragosa, Spain. I had such a great time in Spain, did you? I hope you remember me-if so email me back. I am from Los Angeles, U.S.A Bye.
Gerir fólk svona?!? Ef ég man rétt er þetta kani sem að ég talaði við í ca. 5 min. og er ekki alveg að skilja að hann hafi fengið mailið mitt, þar sem að ég var að dreifa bull adressum. Hann var voða kátur með að hitta einhvern sem að skildi ensku og bleahhh en ég hugsa að múgurinn í LA sé einnig nokkuð fær svo að hann má láta mig í friði.
Erfitt að vera heillandi :)


Védís þú ert snillingur! Ekki hægt að óska sér betri vinkonu. Love you to pieces :o)


S.2000
Það eru ekki til orð fyrir snilldina í gær. Nóg var um dýrðir en flest prik kvöldsins renna til Önna Heru og Halldóru fyrir rappið á frumsamda laginu Reiðinnar býsna! Nú er það samningur, frægð og frami.... Eftir mega partýið var það bærinn. Byrjaði á Prikinu þar sem Fríða frænka, Bogga frænka, Dagmar, Áróra o.fl. gott fólk voru í góðu glensi. Síðan var það Vegamót þar sem að Aldís hélt stuðinu gangandi, Celtic (ekki spyrja) og Hverfisbarinn. Fróði, Elli og Gunni sáu til þess að mér leiddist ekki þar.

Núna er ég mega dugleg að vinna og í kvöld er það bíó með Söru sem ég passaði í Madrid. Hún er 12 ára þokkadís sem er gaman að sprella með :o)


Home