bryddarinn


Nasaret er farinn að svamla og svo í keistið hér!


Bums
Sú er staðan að ég þekki sennilega alla róna bæjarins. Þeim finnst voða gaman að chilla í Símanum á Laugavegi með bjór í annarri og síma í hinni. Þeir hafa reyndar haft sig hæga að undanförnu. Kannski eru þeir loksins farnir að átta sig á því að ég gef hvorki síma né frelsis inneignir. Borga, borga... Það kom hérna einn áðan og hann endurtók í sífellu hvað ég væri yndisleg stúlka, strauk á mér höndina og fleira skemmtilegt. Rauk beinustu leið inn á klósett og tók Crying Game yfir vaskinum! ojbara


Ég var að pósta fyrir nokkrum mínútum og klukkan er 15:26 hjá mér. Þessi póstunarklukka er á sýru...


Sábado
Núna eru 45 mín eða svo þangað til að ég loka búllunni hérna á Laugaveginum. Samt finnst mér ég vera nýkomin. Stórkostlegt alveg hreint. Fór í gær í partý á Prikinu með eðlunum Védísi, Sæma og Óla. Sammi og félagar í 1001 nótt voru með teiti. Þetta er markaðs- og ráðgjafafyrirtæki sem þeir geta verið massa stolltir af. Strákarnir fá 3 prik (fullt hús) fyrir opin bar og góðar veitingar. Við Védís röltum heim um 2 leitið svo að ég er sprækari en allt. Búin að kaupa netasokkabuxur fyrir kvöldið sem að verður snilld! Segi ekki meir um það í bili ef að Kata kömm skildi slysast inn á síðuna mína... cause everything will be a surprise!!!



Sprell!
Loksins get ég farið heim! Er reyndar að vinna bæði lau og sun en það verður samt hellings sprell og læt góða skapið rúlla. Núna er það Valur - Þróttur eða Chelsea - Man.Utd. Held að ég velji Vesturbæjarlaugina.
ÁFRAM VALUR


HELVÍTIS ÚTLENDINGAR!!!!!!!!
Ja hérna hér! Ég var að afgreiða austurlenskar konur í klukkutíma. Þær voru allar að kaupa Motorola v66 og vildu endalausan afslátt sem er ekki hægt þar sem að síminn er á dúndur tilboði. Þá vildu þær frí cover, svo frí símanúmer....að lokum vildu þær TAUPOKA Í STAÐ PLASTPOKA! Time out! Þær fengu engu framgegnt og ég vann!



Gamalt fólk borðar nautahakk á pizzu.


Stuð
Fyrir nákvæmlega viku síðan var ég á leiðinni af ströndinni í Málaga (tilheyrir Costa del Sol en er ekki ein af þeim fallegustu) og á leiðinni á tjútt á götum úti. Ferían! díos mío. Bíma mig þangað núna takk! Var að fá sms frá Sigrúnu, hún er á þjóðarbókhlöðunni að læra en getur það ekki því hún hugsar bara um spán og fær hlátursköst, enda áttum við snilldar moment :o)
Ég er að einblína á björtu hliðina í þessu; vorum að fá glænýja kaffivél hérna í vinnunni frá selecta sem býður upp á nýmalað kaffi og froðumjólk. Meira að segja kaffi ala Kaffitár! svo er Kata koma frá Valencia í kvöld. Hún er búin að vera þar í ár og ég hlakka til að sprella með henni. En tár tár tár, hún Guðrún Jónsdóttir ljónynja með meiru er að flytja til Kaupmannahafnar á morgun. Guðrún þú ert æði og ég á eftir að ráðast á ykkur Daða í Köben.
Meira kaffi!


Sund
Fór á mitt annað heimili eftir vinnu í gær, Vesturbæjarlaugina, og það var endlaust af fólki, enda sól og fínerí. Skrýtið að í lauginni var meirihlutinn Frakkar, Svíar og Danir. Væri ekki frásögu færandi ef um Laugardalslaugina væri að ræða... En í pottinum voru nokkrar stúlkur á mínum aldri sem voru að tala um mat og hvað þær væru leiðar á því að borða brauð með einhverju. Þá fór umræðan út í hafragraut og grjónagraut með slátri útá!!! Ég drukknaði næstum því í pottinum. Hvað er að? Fáið ykkur bara núðlur, grænmeti, spelt brauð, fitty brauð, ALLS KONAR BRAUÐ, salat.... helv.. væl.



Ég vil benda mannskapnum á Aninu, alveg eðal Svisslending sem við Sigrún kynntumst í Barcelona. Alltaf gott að eiga fríkeypis gistingu um allan heim...


Skrýtið fólk
Mamma er alveg að vinna sér inn fullt af prikum, Hlynur hefur komið nokkuð á óvart, blæðir í missed calls og boð í Útilíf þar sem ég fæ að velja mér skíði í afmælisgjöf :o). En Benedikt Valsson! Hvar ert þú? Er ekki nóg að vera tengd þér með blóði til að komast í líf þitt? Á síðunni þinni er bara pláss fyrir Hagaskóla, sumarbúðir og orðaleiki. Hvað með Bodd Bodd? Voða sætt að þú skildir koma heim þegar ég kom úr skemmtilegustu ferð ever, til að knúsa mig en síðan bara ekki söguna meir og þú ert ekki einu sinni með link á síðuna mína. And for your info þá er ég mjög líklega að flytja í Karfavoginn til ömmu Fífí.

Annars er það að frétt af Karfavogskrúinu að lítið barn er í vinnslu einhvers staðar. Veit ekki hver móðirin er, en faðirinn er Þórir bróðir mömmu. Hann á helminginn í Karfavoginum, ætli ég þurfi nokkuð að borga honum leigu???


Besta mamma í heimi!
Ég var vakin upp með jazztónlist og ilmandi kaffi latte gerðum úr eðal möndlu og súkkulaðikaffi frá Kaffitár Í RÚMIÐ!!! og hver á bestu mömmuna???????!!!!!!!!!!! oooog við erum að fara að elda saman e-ð fínerís grænmeti í kvöld. Heilsa heilsa heilsa. Hugsa um að fara til Montgomery á æfingar með Sigga, best að missa 3 kíló á einni æfingu.



Djamm djamm!
Katrín Erla Gunnarsdóttir, a.k.a. Kata kömm er á leiðinni til landsins. Var að tala við Anítu sem er framkvæmdastjóri Single 2000 og það verður múgæsingur næstkomandi laugardag. Guðmundur Jóhannsson hefur bent mér svo skemmtilega á að moonboots sé e-ð sem ekki megi missa af. Hugsa að þetta verði brill fyrir okkur stelpurnar þar sem að þessi hópur er það stór að hann tvístrast eftir smá í bænum. Einhverjar eru reyndar í útlöndum eins og hálfvitar en við látum það ekki á okkur fá og leggjum ennþá harðar að okkur. Aldrei að vita nema að Kreutzfeld Jacob fái að fljóta með. Kata verður víst ein heima svo að það er stefnt á eldamennsku og gúrkusog.


Home